157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:23]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar andsvar. Já, mig hefur kannski verið að dreyma en ég veit ekki betur en að hæstv. utanríkisráðherra hafi farið í gegnum þessi mál hér ítrekað, samningsforsendur. Auðvitað er ekkert hægt kannski að fara nákvæmlega ofan í smæstu smáatriði í því sambandi en það eru línur lagðar og það hefur ítrekað verið sagt hér af ráðherra að það verði ekki skrifað undir neinn samning ef það þýðir að það eigi að afsala sér einhverjum af mikilvægustu auðlindum þjóðarinnar. Það er bara fínt að heyra það frá þingmanninum ef hún hefur ekki heyrt það sama og ég en þetta finnst mér ég hafa heyrt ítrekað hér og það hefur auðvitað gert mig mjög rólega. Að sjálfsögðu þegar kemur að því að sitja með eitthvað fyrir framan sig og geta einmitt farið að taka upplýsta ákvörðun, að ef það stæði eitthvað í slíkum samningi sem ógnar okkar allra heilagasta, þá væri maður bara góður með því að segja: Nei, takk fyrir.