þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir hans spurningu. Já, ég hef fylgst með þessari umræðu árum saman. Ég er náttúrlega orðin eldri borgari og búin að vera að þvælast með þessari ESB-umræðu og oft þótt hún hundleiðinleg í gegnum árin. Hún er reyndar orðin svolítið spennandi núna af því að nú kemur að því að maður fær eitthvað um þetta að segja. Það finnst mér gott, að hafa svona smá vald, þ.e. ég er spurð og ég fæ að velja. Það skiptir mig öllu máli og ég held að það eigi við um fleiri. En ég sé ekkert samhengi í því hvernig fólk er endilega að svara hvort það vilji halda áfram með viðræðurnar og síðan hvað það gerir síðan þegar samningurinn liggur á borðinu. Ég sé ekkert endilega samhengi í því. Eitt er að segja: Já, ég vil vita meira, má ég sjá hvernig þetta mögulega lítur út? Svo kemur bara: Hvernig er þetta? Líkar mér þetta eða ekki? Er þetta eitthvað sem ógnar landinu mínu og okkar auðlindum? Já takk eða nei takk. Þetta er bara tvennt ólíkt og þess vegna sé ég ekki hvernig er hægt alltaf að tengja þetta tvennt saman á þessum tímapunkti. Ég hef ekki getað áttað mig á því.