þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur kærlega fyrir hennar andsvar. Ég er sammála því að mér finnst skrýtið að fólk blandi þessu svona mikið saman. Auðvitað eru tengsl milli aðildarviðræðna og aðildar. Við vitum að þú verður ekki aðili nema fyrir aðildarviðræður og aðildarviðræður eru settar með það að markmiði að ná fram aðildarsamningi og þá geta gengið inn.
En mig langaði að spyrja í ljósi þess að hér hefur komið fram breytingartillaga um að fresta málinu, seinka því um nokkrar vikur eða mánuði, en samt virðist fólk ekki geta stutt tillöguna þrátt fyrir það. Mig langar að spyrja: Sér hv. þingmaður einhverja ástæðu til þess að draga þetta mál eitthvað frekar, fresta því um nokkra mánuði eða er ekki bara ástæða til að klára þetta mál?