þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir hans seinna andsvar. Ég sé ekki hvaða tilgangi það ætti að þjóna að fresta þessu. Hvað er fengið með því? Mér dettur ekkert í hug. Þetta er klippt og skorið og ég verð að segja fyrir mitt leyti, og ég held að ég sé alveg örugglega að tala fyrir mögulega einhverja fleiri, að við viljum bara fá þetta í gegn. Við viljum fá þetta klárað, af eða á, á þessu stigi til þess að geta haldið áfram og vera ekki að eyða frekari tíma aftur í þetta. Nú erum við búin að eyða talsvert miklum tíma í þetta síðasta misseri og síðustu vikur eftir að þessi þingsályktunartillaga kom fram. Á að fara að endurtaka það allt saman aftur eftir einhver misseri? Ég segi bara: Nei, takk, ekki fresta, í guðanna lífsins bænum.