157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:31]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér í dag tillögu til þingsályktunar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég vil byrja á því að taka fram að það er jákvætt og eðlilegt að þjóðin fái að ráða jafn stóru máli. Þegar rætt er um vegferð sem getur haft áhrif á fullveldi landsins, stjórnskipulega stöðu þess og langtímahagsmuni þjóðarinnar á þjóðin að sjálfsögðu að vera í leiðtogahlutverki. Við eigum og verðum alltaf að treysta þjóðinni en einmitt vegna þess að við treystum þjóðinni þá verðum við líka að tryggja að þjóðin fái að taka afstöðu á réttum grundvelli, á grunni gagnsæis og trúverðugleika upplýsinga. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna að ESB er ekki bara spurning um að merkja við á atkvæðaseðli. Hún verður að byggjast á vönduðum undirbúningi, opnum gögnum, samtölum meðal almennings, hlutlægri kynningu og skýrum upplýsingum um hvað raunverulega er undir. Aðildarviðræður við ESB eru einfaldlega málefni sem kallar á allt annan undirbúning en nokkurt annað alþjóðamál.

Í þessu máli eru mörg hagsmunamál undir og ég hef sérstakar áhyggjur af stöðu og þróun auðlindamála, verði af aðildarviðræðum. Hvað þýðir forræði yfir auðlindum? Hvað þýðir í raun þegar á reynir af alvöru að við höfum forræði yfir sjávarútvegsauðlindinni? Hvað þýðir stjórnun auðlinda almennt? Hvar mun ákvörðunarvaldið liggja? Hver á að hafa lokaorðið um auðlindirnar sem íslenskt samfélag byggir á? Við skulum ekki halda að við aðild muni ekkert breytast. Vissulega þýðir aðild ekki að við töpum öllu en það er algerlega óboðlegt að ekki liggi skýrar fyrir hvar rauðu línurnar liggi, hvar við drögum mörkin. Við ESB-aðild breytist hvar lokaákvarðanir eru mótaðar og svo teknar. Í sjávarútvegi verður breytingin bein og í raun verður um grundvallarbreytingu að ræða þar sem við verðum hluti af sjávarútvegsstefnu sambandsins. Bara þetta eitt og sér er mikið mál. Í öðrum auðlindagreinum verður breytingin líka áþreifanleg í gegnum sameiginleg stefnumarkandi markmið Evrópusambandsins.

Virðulegi forseti. Ísland er lítil þjóð. Við höfum ekki stóran heimamarkað, við erum ekki milljónasamfélag. Við höfum ekki risavaxinn iðnað eða jafn fjölbreyttan efnahagsgrunn og margar stærri þjóðir Evrópu. Við eigum hins vegar miklar auðlindir. Lífskjör okkar, byggðaþróun, gjaldeyristekjur og framtíðartækifæri byggjast að verulegu leyti á því að við nýtum þær auðlindir af skynsemi í okkar þágu og á okkar forsendum og þá þarf að hafa langtímahagsmuni íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi. Við þurfum einfaldlega að eiga landið okkar. Það þýðir ekki að hér séu ekki erlend fyrirtæki eða erlendir aðilar sem eiga jarðir eða svæði heldur að við höfum forræði á auðlindum og ákveðum hvernig er farið með þær og hvernig við ætlum að nýta þær. Það skiptir öllu máli. Lítil þjóð sem byggir á svo fáum en staðbundnum auðlindum er í annarri stöðu en stór þjóð með fjölbreyttari iðnað, stærri þjónustugreinar og meiri áhrif innan alþjóðlegra stofnana. Fyrir Ísland er auðlindaforræði í raun forsenda þess að geta lifað af í krefjandi heimi.

Hvernig getum við vitað hvernig heimsmálin munu þróast á næstu áratugum? Við sjáum aukna spennu í alþjóðamálum, sjáum vaxandi samkeppni um orku, matvæli, hafsvæði, land og náttúruauðlindir. Við vitum ekki hvernig staðan verður eftir 10, 20 eða 30 ár en við vitum að fyrir litla eyþjóð í Norður-Atlantshafi er varhugavert að færa frá sér ákvörðunarvald af þeim stoðum sem samfélagið hvílir á.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að ræða Evrópusambandsaðild út frá auðlindum Íslands. Sjávarútvegurinn byggir á fiskimiðunum í kringum landið okkar. Við höfum passað upp á hafsvæðið núna í áratugi með góðum árangri. Orkukerfið byggir á fallvötnum, jarðhita og einstökum náttúrulegum aðstæðum. Landbúnaðurinn byggir á fæðuöryggi, dýraheilbrigði og búsetu í dreifðum byggðum. Ferðaþjónustan byggir á náttúru, landi, víðernum og menningarlegri stöðu. Þetta eru grunnstoðir íslensks samfélags. Aðild að Evrópusambandinu myndi kalla á að Ísland færi inn í sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Hún myndi kalla á afstöðu til sameiginlegrar landbúnaðarstefnu. Hún myndi kalla á nýja stöðu í orkumálum og fleiri málum sem tengjast auðlindum, landi og atvinnuuppbyggingu. Þess vegna duga ekki almenn orð eða stefnuyfirlýsingar í tilteknum skjölum eða vefsíðum um að hagsmunir Íslands verði varðir. Það þarf að liggja fyrir hvað það þýðir. Hverjar eru rauðu línurnar sem við setjum í sjávarútvegsmálum? Hverjar eru rauðu línurnar sem við setjum í orkumálum? Hverjar eru rauðu línurnar sem við setjum í landbúnaði? Hvað ætlum við að sætta okkur við og hvað ætlum við ekki að sætta okkur við? Ef Alþingi ætlar að vísa þjóðinni í þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður þá verður Alþingi einnig að tryggja að þjóðin viti hvaða vegferð verið er að hefja. Með því virðum við lýðræði og þann rétt sem þjóðin hefur og á að hafa til að leggja stefnu til framtíðar.

Virðulegi forseti. Í þessu máli snýst gagnrýnin ekki um að þjóðin fái að koma að ákvörðuninni, þvert á móti, það er eðlilegt að þjóðin hafi lokaorðið. Gagnrýnin snýst um hitt. Undirbúningurinn þarf að vera betri, gögnin þurfa að vera opnari. Kynningin þarf að vera hlutlægari og rauðu línurnar þurfa að vera skýrari. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður aðeins raunverulega lýðræðisleg ef hún er upplýst. Það skiptir einnig miklu máli að þjóðin fái ekki aðeins upplýsingar heldur nægjanlegar, skýrar og hlutlausar upplýsingar um hvað umsókn um aðild að Evrópusambandinu felur raunverulega í sér.

Oft verður umræðan annaðhvort mjög tilfinningasöm eða mjög einfölduð. Sumir tala eins og aðild leysi nær allan vanda sjálfkrafa og aðrir tala eins og allt sjálfstæði hyrfi á einni nóttu. Hvorugt þjónar almenningi vel. Það hjálpar ekki meðaljóni að móta sér skoðun. Fólk á rétt á heiðarlegri mynd af báðum kostum og þeim áhættum og breytingum sem fylgja slíku ferli. Hvaða áhrif getur aðild haft á íslenskan vinnumarkað, löggjöf, atvinnulíf og byggðir? Hvaða áhrif gæti hún haft á verðlag, samkeppni, landbúnað og sjávarútveg? Hvaða ákvarðanir færast nær Íslandi og hvaða ákvarðanir færast fjær, og ekki síður: Hvað er staðreynd, hvað er túlkun og hvað er einfaldlega pólitísk skoðun? Þetta þarf að liggja fyrir með faglegum og trúverðugum hætti áður en þjóðin er beðin um að taka afstöðu.

Lýðræði snýst ekki bara um að kjósa. Þetta snýst um réttinn til að skilja hvað verið er að kjósa um. Þess vegna þarf upplýsingagjöfin að vera yfirveguð, aðgengileg og óháð pólitískum áróðri, hvort sem hún kemur frá stuðningsmönnum eða andstæðingum. Þannig getum við tryggt að niðurstaðan, hver svo sem hún verður, byggist á trausti og upplýstri ákvörðun þjóðarinnar. Þess vegna tel ég eðlilegt að óháð upplýsinganefnd hafi yfirumsjón með kynningu málsins og að óháðir sérfræðingar komi að gerð kynningarefnis. Slíkt myndi styrkja traust, jafnræði og hlutlægni.

Upplýsingaóreiðan er í raun og veru löngu hafin. Hún hófst þegar umræðan hófst hér í þingsal. Hún hófst þegar undirbúningurinn að frumvarpinu fór af stað. Fólk er mikið að velta því fyrir sér: Hvernig á ég að móta mér skoðun? Þegar ég minnist á það að upplýsingaóreiðan sé hafin þá vil ég benda á það að mín reynsla er sú af áratugum á vinnumarkaði að frá og með miðjum maí og fram í miðjan ágúst gerist sáralítið í íslensku samfélagi. Um leið og skólunum fer að ljúka og börnin fara að hlaupa út í sumarið þá gerum við það líka, öll hin. Það sem gerist er að það kemur þreyta í okkur. Það kemur rosaleg þreyta þegar við sjáum sumarið og okkur finnst ofboðslega gott að fara að hugsa minna. Núna erum við að fara inn í þann tíma þar sem við njótum sumarsins og slöppum af en þurfum samt að fara að taka upplýsta ákvörðun og byggja á því og vita hvað eru rétt gögn og hvað ekki.

Ég get alveg sagt fyrir hönd þeirra þúsunda sem vita ekkert hvernig þau eiga að ákveða sig að umræðan getur farið djúpt og hún getur farið grunnt. Ákveðinn hluti þjóðarinnar óskar bara eftir mjög grunnum upplýsingum. Það eru ekki allir sem hafa vilja eða áhuga á því að fara mikið á dýptina. Ég verð spurð þegar ég kem heim: Hvað eigum við að gera? Þá vil ég gjarnan geta vísað í hlutlausar upplýsingar. Ég spyr: Er kominn vefur eða bæklingur? Ég hef ekki heyrt af því. Það væri afskaplega gott ef við værum komin á þann stað að þessar upplýsingar hefðu að einhverju leyti legið fyrir áður en umræðan fór af stað í samfélaginu.

Ég hugsaði eins og hver annar kjósandi: Hvernig myndi ég reyna að móta mér skoðun ef ég hef ekki eindrægan áhuga en vil samt mynda mér einhverja skoðun? Ég fór inn á gervigreindina og spurði hana hvað aðild að Evrópusambandinu myndi gera. Þá kemur skýrt fram: Aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa víðtæk áhrif, bæði pólitísk, efnahagsleg og stjórnsýsluleg. Sum áhrif væru jákvæð að mati sumra, önnur neikvæð að mati annarra. Meginatriðið er að aðild myndi breyta því hvar ákveðnar ákvarðanir eru teknar og hvernig Ísland tengist Evrópu til framtíðar. Hér eru talin upp ákveðin atriði og ætla ég að vitna hérna í fyrsta atriðið: Fullveldi og ákvarðanataka. Ísland myndi taka þátt í stofnunum Evrópusambandsins og fá þar rödd og atkvæði. Á móti myndi Ísland skuldbinda sig til að fylgja sameiginlegri löggjöf sambandsins á mun fleiri sviðum en í dag í gegnum EES. Það þýðir að lokaákvörðun í ákveðnum málaflokkum væri ekki lengur innan lands. Það þýðir að við erum að fara að afsala okkur valdi. EES-samningurinn heldur Íslandi — hefur meira sjálfstæði yfir auðlindum og lykilmálum en hefur takmörkuð áhrif á reglur sem við innleiðum. Með Evrópusambandsaðild fengi Ísland meiri aðkomu að ákvarðanatöku en þyrfti jafnframt að framselja meira vald. Deilan snýst að sjálfsögðu um sjálfstæði.

Virðulegi forseti. Ísland á að eiga góð samskipti við Evrópu. Við eigum að standa vörð um EES-samninginn. Við eigum að eiga öflugt samstarf við ríki Evrópusambandsins og sækja tækifæri á erlendum mörkuðum en það er allt annað að ganga inn í ferli þar sem er óljóst hvernig eigi að tryggja forræði Íslands yfir sjávarútvegi, orku, landbúnaði, landi og náttúru. Íslensk þjóð getur verið opin, alþjóðleg og samstarfsfús án þess að gefa eftir stjórn yfir þeim auðlindum sem við byggjum lífskjör okkar á.

Kjarni málsins er þessi: Þjóðin á að ráða för. Áður en þjóðin er beðin um að taka afstöðu til nýrrar ESB-vegferðar þarf að liggja fyrir skýrt að forræði Íslands yfir eigin auðlindum verði ekki sett í hættu, ekki veikt og ekki gert að samningsatriði án skýrra rauðra lína og viðmiða frá Alþingi og íslensku þjóðinni sjálfri. Alþingi og þjóðin öll verður að setja skýr mörk um hvernig viðræðurnar geta þróast. Við erum lítil en við erum rík þjóð vegna þess að við höfum farið vel með það sem okkur var falið.