þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta yfirferð. Ég get sagt það að ég deili sýn hennar að mörgu leyti í ýmsu sem þar kom fram. Ég er t.d. sammála því að tímasetningin passar ekki. Ef ætlunin er að leyfa þjóðinni að taka upplýsta ákvörðun í þeim efnum velti ég því fyrir mér hvernig meiri hlutinn ætlar að tryggja t.d. upplýsingagjöf í sumarfríi þjóðarinnar. Það er mjög erfitt að nálgast fólk, almenning á þessum tíma. Við þekkjum það sem höfum staðið áður í kosningabaráttu á þessum tíma.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann um eitt atriði. Hún fór vel yfir auðlindir þjóðarinnar og fór aðeins inn á landbúnaðinn. Eitt stærsta þjóðaröryggismál þjóðarinnar, í ljósi þess að við erum eyja lengst úti í Norður-Atlantshafi, er þetta fæðuöryggi sem okkur er svo tíðrætt um. Hver er sýn hv. þingmanns á það? Myndi fæðuöryggi vaxa innan ESB? Væri það tryggara innan ESB en það er í dag eða myndi það veikjast? Og hitt: Hv. þingmaður talaði um mikilvægi þess að við myndum ná fram okkar forræði yfir auðlindum innan ESB. Telur hún að það sé raunhæft miðað við reynslu annarra þjóða?