157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:46]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Heiðbrá Ólafsdóttur fyrir andsvarið. Mig langar að koma aðeins inn á tímasetninguna af því að mér er tímasetningin dálítið hugleikin. Ég set mig ekkert upp á móti henni þannig séð. Ég bara velti því fyrir mér: Ef við erum að tala um að fólk fari upplýst inn í þessar kosningar þá er þetta alla vega sá tími sem ég reikna með að ég og mínir vinir og mín fjölskylda og við sem búum fyrir austan — þetta er akkúrat sá tími þar sem fólk er bara að kjarna sig; það er að ferðast, það eru fótboltamót, það er hjólhýsaferð og það er ekki alveg víst að á tjaldstæðum landsins verði þetta heitasta efnið. En kannski verður það það. Kannski eigum við öll frábært ESB-sumar. En auðvitað getur það svo hæglega gerst, og það er það sem ég hef mestar áhyggjur af, að fólk nenni hreinlega ekki að setja sig inn í þetta, það sé bara komið í frí og gefi því ekki heiðarlegan séns að afla sér þeirra upplýsinga sem það þyrfti eiginlega að gera, það væri voðalega gott.

En varðandi landbúnaðinn þá hef ég gríðarlegar áhyggjur. Það hefur verið mikil fækkun í sauðfjárbúskap, t.d. fyrir austan. Það eru mörg bú sem eru að leggjast af. Menn eru að fækka fé. Þegar verið er að tala um þetta fæðuöryggi er ákveðinn tvískinnungur í því að vera einhvern veginn ekki að reyna að byggja upp landbúnaðinn í þessu landi eins og við erum nú þegar að gera, og vera sífellt að tala um þetta fæðuöryggi, af því að við erum ekki búin að sjá það raungerast hér að ríkisvaldið sé að reyna að vinna að því að auka fæðuöryggi, heldur einhvern veginn að gera því skóna að til að tryggja fæðuöryggi sé bara betra að flytja inn fæðuöryggið. Það er auðvitað ekki mjög traust leið þannig að ég held að við getum verið sammála um að þetta er ekki mjög sannfærandi.

Varðandi auðlindirnar þá held ég að við gerum okkur öll grein fyrir því þegar við horfum á orkumálin og rammaáætlun og þegar við horfum á óbyggð víðerni og uppbyggingu á vindmyllum að við vitum alveg hversu erfið umræða þetta er. Og ef umræðan fer út í það að hér geti Evrópusambandið og allir komið, þetta sé meira opinn markaður, þá vitum við að það getur verið mjög erfitt fyrir fólk af því að við eigum mjög erfitt með að taka ákvarðanir í þessum málum.