þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég tek undir hennar orð sem komu hér fram. Mig langar að fá annað fram: Hver er sýn hv. þingmanns á hvað felst í góðum samningi? Hvar megum við tapa? Er eitthvað sem við megum missa? Er eitthvað sem við getum bara fleygt og þurfum ekki að spá í það ef við erum búin að tryggja okkur sjávarútveginn, ef við erum búin að tryggja okkur auðlindirnar, ef við erum búin að tryggja okkur orkumálin? Getum við þá slegið af í landbúnaðarmálum eða öðrum málum? Hvað er góður samningur? Er hann 100% eða er hann 80%? Og hver ætlar að meta það? Þarna eru litlir hagsmunir líka. Er í lagi að fleygja þeim eitthvert annað?