157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:53]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka þingmanninum fyrir góð andsvör og góðar spurningar. Þegar við erum að tala um upplýsingar þá er náttúrlega alveg ljóst að upplýsingar byrja mjög snemma, þær koma mjög fljótt fram. Þótt þingið hafi ekki endilega tekið afstöðu til þess fyrr þá hefði verið lítið mál að reyna að fara af stað með sameiginlegan vef þar sem ýmsum upplýsingum er safnað saman og reyna þannig að tryggja að upplýsingaóreiðan sé sem minnst frá upphafi umræðunnar. Ég er ekkert endilega að tala um einhverjar stórkostlegar aðgerðir heldur bara það að fólk upplifi að það sé einhvers staðar örugg höfn þar sem hægt sé að leita einhverra upplýsinga. Það sem gerist einmitt í þessum sal er það pólaríserast, afsakið slettuna, umræðan fer í sitthvora áttina og það er ekkert endilega neinum til góða. Þar sem ég er nýkomin úr kosningabaráttu þá veit ég að kjósendur eru alls konar. Það þarf bara oft að mæta kjósendum þar sem þeir eru; hverjar eru þarfirnar og hvaða upplýsingar þarf fólk. Það er kannski aðallega það sem ég er að benda á: Ef menn hafa áhyggjur af upplýsingaóreiðunni þá er hún í raun og veru hafin og búin að vera í gangi bara við það að þetta er búið að vera í meðförum þingsins, sama hvort okkur líkar það betur eða verr. Sem þýðir að núna þegar þetta verður líklega samþykkt hér að þá þegar, um leið og upplýsingarnar fara að berast, er umræðan í raun og veru hálfnuð í huga þjóðarinnar. Umræðan sem á sér stað hér inni hefur líka mótandi áhrif á það.

Varðandi orkumálin þá langar mig aðeins að koma inn á að þetta er ekkert endilega það að hérna — eins og þingmaðurinn benti á, þetta snýst í raun og veru kannski meira um það að við erum í dag að horfa fram á að það er mikil togstreita á milli pólitískra ása um það hvernig við eigum að nýta okkar náttúru til orkunýtingar. Þetta segi ég búandi í öðru landvíðfeðmasta sveitarfélagi landsins. Það skiptir máli að þessir hlutir séu alveg á hreinu. Við sjálf, hérna meðal þessarar þjóðar, erum ekki ásátt um það sjálf hvernig við viljum haga þessu. Við viljum ekki hætta á óöryggi í þeim málum.