157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:55]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svörin. Ég ætla bara að taka undir þetta með hv. þingmanni að það sé mikilvægt að það sé hlutlaus vettvangur þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og það verður á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar að gera það vel úr garði. Mér finnst bara virkilega gott að á það sé bent. Ég skynja það að það sé þá ásókn í það að óska eftir meiri upplýsingum. Hér kom reyndar þingmaðurinn aðeins inn á það í ræðu sinni að markmiðin væru ekki skýr og að upplýsingaöflun hefði verið torsótt inn í — ég geri ráð fyrir að hún sé þá að vitna til þess sem átt sér stað innan utanríkismálanefndar og við höfum svo sem farið yfir það hér í sal. Ég tek ekki undir þau sjónarmið. En er ekki akkúrat þetta verkefni stóra upplýsingaöflunin? Erum við ekki nákvæmlega, fáist já frá þjóðinni, að óska eftir því að fara í stóru upplýsingaöflunina gagnvart Evrópusambandinu þar sem við fáum þráðbeint frá viðsemjendum okkar hvað stendur til boða? Er mikil ástæða til að óttast það? Hefur hv. þingmaður miklar áhyggjur af því að það verði hér óafturkræfar breytingar sem ekki verði snúið frá? Það er skýrt í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar að það eru vissulega skýrar línur og upplegg um það hvernig stefnt skal að mjög metnaðarfullum markmiðum í samningaviðræðum ef af þeim verður. Ég vil kannski líka benda á að þetta þing hefur ekki heimild til að binda hendur hæstv. ráðherra eða þeirrar samninganefndar sem fer fyrir þjóðinni. Hins vegar er það pólitísk ábyrgð þessara þingmanna og ríkisstjórnarinnar sem situr hér að halda vel á málum.

Ég vil spyrja: Er ekki gengið til góðs með því að fara í þessa vegferð í þágu upplýsingaöflunar? Og í öðru lagi finnst mér svo rétt sem hv. þingmaður bendir á varðandi orkumálin: Já, svo sannarlega eru mismunandi þarfir og hagsmunir Íslands eru mismunandi. (Forseti hringir.) Væri þá ekki gott að vera með fólk á vettvangi í Brussel sem hefði bein áhrif á stefnumótun út frá íslenskum hagsmunum, pólitískum íslenskum hagsmunum, mögulega hagsmunum íslenskrar landsbyggðar?