157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:21]
Horfa

Árni Helgason (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða um þingsályktunartillögu þess efnis að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla varðandi þá tillögu að endurvekja aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er auðvitað risastórt mál og ég vil byrja á að taka fram hér í upphafi ræðunnar að ég tek undir það sem fram hefur komið hér í dag og í gær og upp á síðkastið varðandi gagnrýni á málsmeðferð og undirbúning þessa máls. Hann er ekki í samræmi við alvöru og þunga þess máls sem um er rætt. Það fer ekki vel á því að taka jafn stórt mál og hér á í hlut út úr þingnefnd með þeim hætti sem gert hefur verið. Það fer heldur ekki vel á því að á þeim stutta tíma sem þetta mál hefur verið hér til meðferðar hefur þurft að breyta orðalagi spurninganna sem lagt var upp með fyrir atkvæðagreiðsluna eftir athugasemdir frá landskjörstjórn. Það fer auðvitað heldur ekki vel á því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um jafn stórt mál og þetta í lok ágúst. Það blasir við að sú tímasetning er ekki heppileg. Þeir þrír mánuðir sem lögin gefa í frest, lágmarksfrestur samkvæmt lögunum, fara í raun fyrir lítið þar sem þjóðin er núna að sigla inn í sumarfrí og við blasir að umræða um málið mun taka mið af því. Því er eiginlega algerlega ósvarað hvað liggi á. Hvers vegna er ríkisstjórnin að keyra þetta mál núna en ekki á næsta ári eins og til stóð samkvæmt stjórnarsáttmálanum? Við þessu hafa ekki fengist nein sérstaklega góð svör önnur en þau að þetta sé bara svona og það sé búið að ákveða að þetta verði þannig.

Virðulegur forseti. Afstaða mín varðandi aðild að Evrópusambandinu er skýr. Ég er ekki fylgjandi aðild. Ég tel raunar að ferlið og sá lærdómur sem við hljótum að draga af sögunni að þessu leyti, frá árunum 2009–2013 þegar sótt var um aðild, hljóti að segja okkur að hér er ekki bara um risastórt mál að ræða heldur líka mál sem tekur mikinn tíma og sogar til sín mikla orku. Afraksturinn úr síðustu viðræðum var rýr. Ég held að allir geti verið sammála um það. Á þeim fjórum árum sem liðu frá því að sótt var um og fram til 2013 var aðeins búið að ljúka við 11 efniskafla. Búið var að opna 16 kafla en það var ekki búið að opna kaflann um sjávarútveg og það var ekki búið að opna kaflann um landbúnað. Fjórum árum frá því að umsóknin fór inn vorum við ekki byrjuð að ræða tvo stærstu kaflana. Þess vegna er tímasetningin á þessu máli núna svolítið sérstök. Á sama tíma og ríkisstjórnin er að berjast við erfiða stöðu í efnahagsmálum er þetta mál keyrt áfram. Bara síðast núna í vikunni komu enn ein erfiðu tíðindin að þessu leyti, 25 punkta hækkun stýrivaxta frá Seðlabankanum. Það hjálpar okkur ekki í því stóra verkefni að ná utan um efnahagsmálin að ætla að blása í þennan risaleiðangur núna í þessum flýti.

Virðulegi forseti. Orð og þýðing þeirra skipta oft máli. Mig langar til að fara aðeins yfir þetta hugtak sem kemur oft upp í umræðunum hér, viðræður. Ég held að það skipti aðeins máli í þessu samhengi hvernig við skiljum þetta orð, hvaða skilning við leggjum í það. Ein leiðin er auðvitað sú að líta svo á að viðræður séu þannig að tveir jafnsettir aðilar ræði saman og leiði sig að niðurstöðu í formi samnings. Dæmi um þetta gætu auðvitað verið einfaldir hefðbundnir samningar. Um daginn bankaði t.d. upp á hjá mér ungur maður og spurði hvort hann ætti að slá grasið hjá mér. Við ræddum málið stuttlega. Við sömdum um verð, tímalengd og fleira. Þetta var svona dæmi um viðræður þar sem báðir aðilar hafa fullt vald á öllum atriðum málsins, öllum kjörum og öllum skilmálum. Svo eru líka til viðræður sem lúta öðrum lögmálum. Til dæmis þegar tekið er lán í banka þarf lántakinn að gjöra svo vel og skrifa undir þau lánakjör sem fyrir hann eru lögð með þeim stöðluðu skilmálum sem um lánið gilda. Sá sem tekur lán getur ekki vænst þess að setjast niður og fá að endursemja um alla skilmálana eftir sínu höfði eða að fá að fella niður helming þeirra. Það gengur ekki. Þetta er bara það sem er í boði og hann getur tekið því eða hafnað því. Enn skýrara dæmi í þessa átt eru svo skilmálar sem manni er gert að staðfesta á netinu þar sem það er aðeins tvennt í boði, að samþykkja eða hafna. Og ef þú hafnar þá færðu ekki að vera með.

Af hverju er ég að nefna þetta? Jú, vegna þess að málið sem við fjöllum um er ítrekað kynnt með villandi hætti af hálfu ríkisstjórnarinnar. Málið er kynnt eins og þarna séu tveir jafnsettir aðilar að fara að setjast niður og ræða vítt og breitt saman, svona eins og við byrjum með óskrifað blað og ætlum að semja saman um alla þætti málsins. Þannig er það auðvitað alls ekki. Þjóðir sem óska eftir því að ganga inn í Evrópusambandið sækja um aðild að sambandinu en þær setjast ekki niður og taka upp almennt spjall um alla skilmála. Þær fá ekki að velja og hafna hvað þær vilja og hvað þær vilja ekki.

Evrópusambandið sjálft hefur reyndar lýst því mjög skýrt hvað þjóðir þurfi að gera til að fá aðild að sambandinu. Þetta kemur nú bara beinlínis fram á vefsíðu sambandsins. Þar lýsir sambandið því að inngönguferli nýrra ríkja skiptist í grunninn í þrjú skref. Það fyrsta er umsókn um aðild. Umsóknarríkið óskar eftir því að fá að ganga inn í Evrópusambandið. Skref tvö er það sem kallast á ensku „membership negotiations“, eins og það heitir, en þar segir að umsóknarríkið undirbúi sig fyrir það að taka upp alla löggjöf Evrópusambandsins og í gegnum ferlið muni framkvæmdastjórn sambandsins fylgjast með og hafa eftirlit með því að umsóknarríkið sé að klára nauðsynlegar breytingar að þessu leyti. Svo tekur við skref þrjú. Það hefst þegar framkvæmdastjórn ESB telur að umsóknarríkið hafi staðið sig það vel að það sé orðið tilbúið til að verða aðildarríki, þ.e. að það sé búið að sýna fram á með fullnægjandi hætti að allt regluverk sambandsins verði tekið upp. Viðræðuferlið snýst því um það hvernig þjóðum gengur að aðlaga regluverk sitt að regluverki Evrópusambandsins. Út á það ganga það sem við köllum viðræður.

Þetta eru ekki viðræður í þeim skilningi að það sé hægt að velja og hafna hvað við gerum heldur er þetta inngönguferli. Til samræmis við þetta eiga aðildarríki að koma og gera reglulega grein fyrir því hvernig þeim gangi að innleiða regluverk Evrópusambandsins. Hvað vantar upp á? Af hverju ertu ekki kominn lengra? Hvert er tímaplanið í að klára innleiðinguna? Þess vegna munu ráðherrar ríkisstjórnarinnar, ef það kemur já í ágúst, þurfa að taka að sér að undirbúa stjórnsýsluna fyrir aðild og skuldbinda sig til að vinna að breytingum á málaflokkum á sínu sviði lagalega þannig að allt verði í samræmi við regluverk ESB. Þetta á við um alla hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar, líka ráðherra Flokks fólksins sem þó voru auðvitað alfarið á móti ESB-aðild í kosningunum 2024. Á þeirra vakt mun þunginn í vinnu ráðuneyta þeirra það sem eftir lifir þessa kjörtímabils snúast um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Þetta á auðvitað við um önnur ráðuneyti líka.

Virðulegi forseti. Þetta eru ekki huggulegir spjallfundir í Brussel. Þetta er risaferli sem hefur í för með sér margs konar kvaðir af okkar hálfu og felur í sér stórar breytingar á íslensku stjórnkerfi. Það skiptir auðvitað líka máli hver aðdragandi málsins er. Í hvaða pólitíska samhengi er málið sett fram? Nýtur aðild að ESB stuðnings allra ríkisstjórnarflokkanna? Nýtur aðild að ESB víðtæks stuðnings meðal almennings, meðal verkalýðshreyfingarinnar, meðal atvinnulífsins? Svarið við öllum þessum spurningum er neitandi. Eru einhverjar stórar breytingar í ytra umhverfinu sem kalla á að við endurmetum hagsmuni okkar með tilliti til ESB-aðildar? Nei. Bara núna í vikunni kom t.d. frétt um að fram hafi farið skoðanakönnun í Noregi þar sem meiri hluti Norðmanna segist andvígur inngöngu í Evrópusambandið. Það eru engir fyrirvarar um breytingar þar.

Önnur spurning sem má velta upp er hvort það sé meiri hluti fyrir því á þingi að taka þetta mál alla leið með öllu sem því fylgir og með því að samþykkja og afgreiða nauðsynlegsar breytingar, t.d. á stjórnarskrá. Er þingmeirihluti fyrir því? Það verður áhugavert að sjá hvernig hv. þingmenn Flokks fólksins svara fyrir það og taka á því þegar og ef á reynir. Það var kosið til Alþingis í nóvember 2024. Það voru 11 flokkar í framboði og þá náðu sex flokkar kjöri. Af þessum 11 flokkum voru tveir flokkar, Viðreisn og í einhverjum skilningi Píratar, sem töluðu fyrir ESB-aðild og af þeim flokkum sem náðu kjöri var aðeins einn flokkur sem talaði fyrir ESB-aðild og það var Viðreisn sem fékk tæp 16% atkvæða. Á móti kemur kusu 60% kjósenda flokka sem tóku það mjög skýrt fram að þeir væru mótfallnir ESB-aðild. Þarna á milli stendur svo Samfylkingin en formaður flokksins og hæstv. forsætisráðherra sagði í kosningabaráttunni að ekki yrði farið í ESB-aðildarleiðangur nema víðtækur stuðningur væri við málið í þjóðfélaginu, meðal almennings og aðila vinnumarkaðarins. Sá stuðningur er ekki fyrir hendi en flokkurinn kannast bara ekki við þessi skilyrði lengur. Hvernig er það til marks um lýðræðislegar áherslur að þau 16% sem kusu Viðreisn eigi að hafa meira vægi en einhvern veginn allir hinir?

Stærsta spurningin hlýtur auðvitað að vera þessi: Vill þjóðin að Ísland óski eftir aðild að Evrópusambandinu og hefji aðlögun að sambandinu? Eða vill þjóðin segja: Það er ekki orkunnar virði að fara að eyða allri þessari vinnu í eitthvað sem við höfum hvort eð er ekki nægan stuðning við og erum ekki að fara að klára? Mig langar að taka það fram að Evrópusambandið hefur að flestu leyti verið afl til góðs í álfunni og heiminum. Það er upphaflega byggt á hugmyndinni um að besta leiðin til að tryggja frið sé með aukinni samvinnu og viðskiptum milli þjóða, með því sem síðar varð sameiginlegur markaður. Þetta hefur auðvitað allt verið til góðs og ég held að við verðum að geta rætt málið út frá því að mála þetta ekki upp sem einhvers konar fullkomnar andstæður, Evrópusambandið og Ísland. Að langmestu leyti eru hagsmunir okkar sameiginlegir.

Spurningin sem við hljótum að vilja spyrja okkur er: Er hagsmunamatið þannig að við eigum að fara úr þeirri stöðu sem við erum í núna og yfir í fulla aðild? Það liggur fyrir að Evrópusambandið hefur á undanförnum árum þróast í ákveðna átt. Það hefur þróast og þróast alltaf hraðar og hraðar í þá átt að verða einhvers konar sambandsríki. Það er reglusækið. Regluverkið í Evrópusambandinu er þungt. Áhrif okkar innan þings og stofnana Evrópusambandsins yrðu ekki mikil. Við þurfum auðvitað að vera dálítið gagnrýnin á þessa spurningu, hvort og hvað full aðild færi okkur umfram það sem við höfum núna. Með EES-samningnum, sem okkur er mjög mikilvægur, tryggjum við viðskiptalega hagsmuni okkar að þessu leyti. Það er ekkert sem bendir til þess að sá samningur sé í uppnámi og það er auðvitað lykilatriði í þessu máli.

Þegar við skoðum svo stærri myndina þá liggur auðvitað fyrir að Evrópa hefur dregist aftur úr í heiminum þegar kemur að samkeppnishæfni. Draghi-skýrslan sem kom út árið 2024 dró það skýrt fram að Evrópusambandið hefði gengið allt of langt í regluvæðingu og miðstýringu og væri langt á eftir t.d. Bandaríkjunum þegar kemur að samkeppnishæfni. Þar kemur fram að það þurfi verulegar breytingar hjá sambandinu. Engu að síður, og það er dálítið fróðlegt, er því haldið fram í umræðunni af hálfu talsmanna ríkisstjórnarinnar að það sé beinlínis nauðsynlegt að fara inn í Evrópusambandið og það er m.a. nefnt að það sé út af þeirri miklu fákeppni sem sé hér á landi á mörkuðum og að það þurfi ESB-aðild til að bæta úr og fá hingað til lands aukna samkeppni. Það er auðvitað gott og gilt markmið að auka samkeppni og fá hingað til lands öflug fyrirtæki en vandinn við þetta er að það er nákvæmlega ekkert sem kemur í veg fyrir að erlend fyrirtæki komi hingað til lands nú þegar. Fjórfrelsi EES-samningsins er einmitt mjög skýrt með það að evrópsk fyrirtæki geti komið hingað, fjárfest og starfað. Það hefur auðvitað gerst nú þegar. Ég nefni bara sem nýlegt og vel þekkt dæmi Costco sem kom hingað til landsins. Auðvitað erum við með fullt af alþjóðlegum fyrirtækjum hér á landi. Við verslum föt í HM, við verslum húsgögn í IKEA, við getum keypt tryggingar af Allianz, hér er rekin risastór alþjóðleg verkfræðistofa sem heitir COWI og svo mætti auðvitað lengi, lengi telja. Sama með erlenda fjárfestingu, það eru ekki mörg ár síðan franskur sjóður keypti allt hlutafé í Mílu, Coloplast keypti allt hlutafé í Kerecis og JBT og Marel sameinuðust og svo mætti auðvitað lengi telja. Ef það væri einhvers konar almennur ómöguleiki á því að erlend fyrirtæki kæmu hingað til lands hefði væntanlega ekkert af þessu gerst.

Maður veltir svolítið fyrir sér hvert talsmenn ríkisstjórnarinnar eru eiginlega að fara með þessu. Staðreyndin er nefnilega sú að ef ríkisstjórninni er alvara með að fá fleiri öflug erlend fyrirtæki hingað til lands, markmið sem ég myndi taka undir, þá hefur hún auðvitað ýmsa aðra valkosti í þeim efnum, t.d. að draga úr gullhúðun EES-reglna, einfalda og lækka gjöld og regluverk og jafnvel að setja beina hvata til þess að fá erlend fyrirtæki hingað til lands. Þessi mál hafa hins vegar ekki verið neitt sérstaklega á dagskrá ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili fyrr en allt í einu núna í tengslum við ESB-umræðuna þegar keyrt er á því að til þess að laga fákeppni á Íslandi verði að ganga í Evrópusambandið.

Annar punktur sem er gjarnan nefndur í þessum efnum er að með inngöngu í Evrópusambandið gæti Ísland tekið upp evru og fengið evruvexti. Hér þarf að hafa ýmislegt í huga. Fyrir það fyrsta tekur Ísland auðvitað ekki upp evru nema að uppfylltum þeim skilyrðum sem fyrir liggja. Þau snúa að því að viðkomandi land þarf að geta sýnt fram á tiltekin skilyrði yfir tiltekinn tíma, m.a. að verðbólga sé ekki hærri en 1,5% hærri en verðbólga í þeim þremur aðildarríkjum sem hafa hvað lægstu verðbólguna á tímabilinu. Það er sambærileg regla með vexti nema að þar er talað um 2% mun. Þetta myndi þýða fyrir okkur að verðbólga þyrfti sennilega að lækka einhvers staðar undir 2% og vextir að vera á svipuðu bili ef við ættum að uppfylla þessi skilyrði. Það eru auðvitað fleiri skilyrði tengd skuldahlutfalli ríkisins, gengisstöðugleika og fleira. Þessum markmiðum þyrftum við að ná sjálf og höfum í huga að í slíku verðlagi og slíku vaxtastigi, ef við myndum ná þessum skilyrðum, myndi fjármagnskostnaður heimila og fyrirtækja lækka hratt og vera lágur. Við blasir að við höfum það í hendi okkar að halda stöðunni þannig. Við þurfum ekki að sækja vatnið yfir lækinn í þeim efnum.

Svo er auðvitað annað sem þarf að hafa í huga varðandi evru og evrópska vexti. Ef við skoðum vexti á evrusvæðinu aftur í tímann má sjá að þeir hafa lengi verið um 0%. Ef maður skoðar t.d. tímabilið 2012–2022 þá voru stýrivextir Evrópska seðlabankans lengi vel 0% og fóru hæst í 0,75%. Veltum þessu aðeins fyrir okkur. Hvað þýðir það að hafa 0% stýrivexti? Hvaða efnahagslega samhengi er þar að baki? Þetta lýsir auðvitað efnahagslegri stöðu sem er þung og erfið vegna þess að það er mikið atvinnuleysi og það er lítið um nýsköpun þar sem hagvöxtur er ekki mikill. Í slíku efnahagsumhverfi þarf að stilla vaxtastigið af þannig að það beinlínis hvetji fólk til að taka lán, það beinlínis hvetji fólk til aukinnar neyslu. Og jafnvel þótt vextirnir hafi verið svona lágir svona lengi þá virðist það ekki hafa dugað til.

Hin hliðin á þessu máli er síðan mikið atvinnuleysi í löndum Evrópusambandsins. Ef við horfum til nokkurra af stóru löndunum í Evrópu, t.d. Frakklands, Spánar og Ítalíu, þá eru þetta allt saman lönd sem hafa glímt við atvinnuleysi lengi. Spánn sá t.d. tölur á árunum eftir efnahagshrun þar sem atvinnuleysi var á bilinu 20–25%. Hugsið ykkur. Það hefur lækkað núna sem betur fer og stendur í einhverjum 11%. Í Frakklandi og á Ítalíu voru atvinnuleysistölur lengi vel yfir 10% en undanfarin ár hefur atvinnuleysi verið einhvers staðar á milli 7 og 8%. Hér gætum við líka spurt: Hvers vegna? Hvaða efnahagslega samhengi er þarna að baki? Hátt atvinnuleysi þýðir að það vantar störf. Störfin verða ekki til vegna þess að krafturinn í hagkerfunum er ekki nægur. Allt ber þetta að sama brunni: Óvenjulágt vaxtastig og hátt atvinnuleysi eru einkenni á þungu, hægu hagkerfi, efnahagssvæði þar sem þarf að hvetja til aukins frumkvæðis og framtaks. Þetta er einkenni á efnahagskerfi þar sem fólk ryðst ekki fram á völlinn og stofnar fyrirtæki eða lætur vaða, í nógu miklum mæli a.m.k. Þetta er einkenni á stöðum þar sem fólk heldur frekar að sér höndum.

Þegar við berum þetta saman við taktinn í íslensku efnahagslífi og einkenni þess þá sjáum við að þetta er auðvitað talsvert ólíkt. Hér hefur fólk verið óhrætt við að láta vaða, stofna fyrirtæki, stunda nýsköpun og stækka. Þess vegna hefur hagvöxtur hér á landi almennt verið miklu hærri en meðaltalið í Evrópusambandinu. Hér er atvinnuleysi lágt og hefur verið nánast óþekkt vandamál, ef svo má að orði komast, árum saman blessunarlega. Spurningin sem við hljótum síðan alltaf að spyrja okkur á endanum, eftir að hafa rýnt í hagtölurnar, er: Hvernig eru lífskjörin? Hvernig höfum við það samanborið við aðrar þjóðir? Á hvaða leið höfum við verið í þeim efnum undanfarin ár? Allir mælikvarðar sem við getum skoðað að þessu leyti sýna okkur það sama. Ísland er í fremstu röð, hvort sem við horfum til tekna, kaupmáttar, lífshamingju og ánægju eða jöfnuðar á dreifingu eigna. Hvernig getum við í ljósi þessarar stöðu haldið því fram að hér sé bara einhvers konar knýjandi nauðsyn á því að drífa í aðild að Evrópusambandinu? Ég fæ það ekki alveg til að ganga heim og saman.

Virðulegi forseti. Annað sem hefur verið nefnt í þessari umræðu eru varnar- og öryggismál. Þau eru sannarlega mikilvæg og hafa árum saman byggt á tveimur meginstoðum, annars vegar veru okkar í NATO og hins vegar varnarsamningi okkar við Bandaríkin. Ekkert bendir til þess að varnarsamningur okkar við Bandaríkin sé í uppnámi og það er auðvitað mikilvægt að rækta það samstarf vel og vandlega. Þegar kemur að öryggis- og varnarmálum er augljóst að Bandaríkin eru okkar öflugasti bandamaður. Evrópa er það auðvitað líka, mjög mikilvægur bandamaður, en umræða undanfarinna missera hefur beint sjónum að því hversu langt Evrópa er á eftir að þessu leyti. Um það er bara Evrópa sjálf mjög sammála með því að hafa aukið verulega við framlög til varnarmála.

Mig langar svo í lokin að nefna punkt sem mér finnst skipta máli og það er verðmæti þess að vera sjálfstæð í þessum nútímaheimi. Auðvitað hefur verið mikill órói á alþjóðasviðinu undanfarið og margt er ekki eins og það er vanalega. Við þurfum að horfa á þá stöðu með köldum haus og meta hvaða áhrif þetta ástand hefur á okkar hagsmuni. Það er í sjálfu sér ekkert sem bendir til þess að við þurfum að snúa okkar stöðu á haus. Þvert á móti er staða Íslands meðal þess sem best þekkist í heiminum í dag. Í umræðunni er stundum reynt að gera lítið úr þessu hugtaki, sjálfstæði, reynt að spyrða það saman við einangrunarhyggju eða áhugaleysi um alþjóðlegt samstarf, sem er auðvitað ekki rétt og ekki sanngjarnt. Sjálfstæð þjóð ákvarðar sín örlög sjálf fyrir samstarf við aðrar þjóðir og styrkir það með samningum eins og fríverslunarsamningum og annars konar samningum og samstarfi. Á þeim tímum sem nú líða eru mikil tækifæri í þeim efnum og margt sem Ísland gæti skoðað og grætt á því. Þannig styrkjum við okkur og sköpum okkar eigin framtíð.

Virðulegur forseti. Ég fer nú að slá botninn í þetta en eins og ég hef rakið hér þá erum við Íslendingar í alveg sérstaklega góðri stöðu. Það er mjög sérstakt að sjá ríkisstjórnina hoppa til og keyra hér á nokkrum vikum í gegn þetta mál sem mun taka gríðarlegan tíma frá okkur, mikla orku þegar við þurfum að hafa athyglina annars staðar. Þegar við skoðum stóru myndina þá er hún blessunarlega afskaplega sterk hvernig sem á hana er litið. Það er í sjálfu sér ekkert sem hastar. Það er ekkert sem kallar á það að við rjúkum til, köstum því frá okkur sem við höfum og förum fram á fulla aðild með tilheyrandi valdaframsali og öðru til Evrópusambandsins. Við stöndum sterkum fótum og sköpum þannig okkar eigin framtíð.