þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða yfirferð. Það er einmitt þetta með fullveldið, að vera sjálfstæð. Hver vill ekki vera sjálfráða? Hver vill ekki ráða sínum málum? Hvers virði er þetta fyrir okkur sem þjóð? Mig langaði að fá kannski sýn hv. þingmanns á það að nú leggur ríkisstjórnin mikla áherslu á að ná góðum samningi, það verði ekki gengið frá neinu nema það sé góður samningur. Hvað þýðir góður samningur? Er átt við einn góðan samning yfir alla kaflana, einn heildstæðan samning, eða er átt við góðan samning í hverjum kafla fyrir sig? Hvert er mat hv. þingmanns?