þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum aftur fyrir fyrirspurnina. Þetta er góð vangavelta og spurning hvar ef einhvers staðar er hægt að gefa eftir. Ég veit ekki hvort það segi okkur eitthvað en í skýrslu hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra Össurar Skarphéðinssonar, sem hann gaf út í apríl 2013, ég held að ég sé að fara rétt með, var því lýst sem hafði staðið yfir í fjögur ár frá því að Alþingi samþykkti aðildarumsókn árið 2009 og þá var, eins og það heitir, búið að loka 11 köflum. Kaflarnir eru, má segja, misveigamiklir, kannski misjafnlega knýjandi hagsmunir en alls staðar hljótum við að hafa mikilvæga hagsmuni og eitthvað sem við þurfum að rýna vel. En það sem auðvitað stendur upp úr því ferli og þessari skýrslu hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra er í raun og veru hversu skammt á veg við vorum komin. Það er sláandi að í tveimur stærstu köflunum, sjávarútvegi og landbúnaði, þar sem við hljótum að gera alveg sérstaklega miklar kröfur, var í raun og veru ekki búið að opna þær viðræður eða þá skoðun að neinu leyti. Hvað það segir um ferlið og hvað það segir um það sem var í boði — nóg eru menn búnir að vera í Brussel, nóg eru menn væntanlega búnir að spjalla í bakherbergjunum og kanna stöðuna og athuga hvernig landið lægi. Það er ekki tilviljun hvernig fór, í mínum huga. Þetta sýnir okkur að þessar sérlausnir eru ekki í boði og ekki jafn aðgengilegar og af er látið.