kostnaður vegna rannsóknar á seinkun á umhverfismati Sundabrautar.
Virðulegur forseti. Varðandi seinkun Sundabrautar þá gætir ákveðins misskilnings í fyrirspurn hv. þingmanns. Við erum ekki hér að tala um seinkun eða seinagang hjá HMS eða Skipulagsstofnun. Þetta er unnið þannig að Vegagerðin gerir umhverfismatsskýrslu sem er send til Skipulagsstofnunar, núverandi HMS, sem kemur með álit á skýrslunni. Þetta byrjar þannig, svo að ég fari aðeins aftar í þetta ferli, að Vegagerðin gerir matsáætlun um það hvernig hún ætlar að gera umhverfismat skýrslunnar, hvernig Vegagerðin ætlar að meta áhrif framkvæmdarinnar á náttúruna, á umhverfið. Skipulagsstofnun eða HMS kemur með álit á þessari matsáætlun, þ.e. matsáætlunin fjallar um það hvernig þú ætlar að meta það. Það sem við þurfum að skoða er það hvort það verði örugglega ekki farið eftir þessari matsáætlun sem stjórnvald er búið að samþykkja og fór í kynningu. Það er gríðarlega mikilvægt að áætlanir í landinu haldi.
Ég minni líka á að í 1. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum segir að að sjálfsögðu eigi að meta umhverfið. Í 1. gr. b-lið er talað um skilvirkni áætlana sem er markmið með lögum um mat á umhverfisáhrifum. Í c-liðnum er talað um að upplýsa borgarana um fyrirhuguð umhverfisáhrif af framkvæmdinni. Það er þetta sem við erum að skoða og þetta er lögbundið ferli. Það var rétt að láta lögmannsstofu fá verkefnið til að fara yfir það hvort þessu lögbundna ferli væri ekki örugglega fylgt og farið eftir matsáætlun en ekki vera með eitthvað allt annað en fyrirtækið eða stofnunin ætlar sér að gera. Ég vona að þetta svari spurningunni.
Varðandi kostnaðinn þá liggur hann ekki fyrir. Þetta er bara eðlilegt eftirlit ráðuneytisins með undirstofnun hvað varðar mikilvæga verkþætti. Ég get líka upplýst um það að þegar ég fékk lyklana þá var sagt við mig að þetta kæmi úr umhverfismati í apríl í fyrra, en við gerum ráð fyrir að álit HMS á matinu komi í næsta mánuði, á næstu vikum.