157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

horfur og aðgerðir í efnahagsmálum.

[10:47]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil nú bara byrja á því að þakka umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kærlega fyrir mjög áhugaverða ræðu um samning sem mögulega kemur ekki hingað og við höfum verið að ræða. Mig langar hins vegar að beina orðum mínum og sjónum að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og ræða aðeins stöðuna í efnahagsmálum, sem því miður er ekki góð. Við erum með 5,2% verðbólgu. Meginvextir eru komnir í 7,75 og voru að hækka um 0,25 punkta. Við erum að sjá hagvöxt hér á leið niður. Við erum að sjá atvinnuleysi á leið upp. Við erum að sjá verðbólguvæntingar hækka og forsenduákvæði kjarasamninga er í hættu. Horfurnar eru að versna verulega.

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að mér er pínu vandi á höndum þegar ég ætla að móta spurningu til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, einfaldlega vegna þess að við erum ítrekað hér búin að spyrja um aðgerðir. Við erum ítrekað búin að spyrja um planið og það er fátt um svör. Fyrst var það þannig að planið var planið, planið átti að halda og það átti ekkert að gera. Síðan er farið í olíugjaldið, sem við bara fögnum. Þá var spurt hvort það ætti að fara í samtal við verkalýðshreyfinguna og atvinnulífið til að reyna að ná einhvers konar sátt á vinnumarkaðnum. Það átti ekki að gera. Forsætisráðherra var skýr um að það ætti ekki að beita sér á almennum markaði, ríkið ætti ekki að koma að kjarasamningum á almennum markaði, og gagnrýndi fyrrverandi ríkisstjórn. En nú er komin nefnd. Gott og vel, við fögnum því. (Forseti hringir.) En spurningin er: Hvað hefur breyst frá því að hæstv. forsætisráðherra tilkynnti að það ætti ekkert að gera varðandi vinnumarkaðinn, atvinnulífið?