157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

horfur og aðgerðir í efnahagsmálum.

[10:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna og tek undir það með honum að hvorki ákvarðanir Seðlabankans né heldur sú þróun sem orðið hefur varðandi verðbólgu eru góðar. Ég vil samt minna hv. þingmann á yfirlýsingu peningastefnunefndar og fullyrðingar seðlabankastjóra um hvert hlutverk ríkisins væri og hvað skipti máli að ríkið legði fram á þessum tímapunkti. Þar kom skýrt fram að mikilvægasta aðgerð ríkisstjórnarinnar væri að skila hallalausum fjárlögum. Það er sú áætlun sem legið hefur fyrir frá því að þessi ríkisstjórn tók við og það er auðvitað mjög jákvætt að fá eins óyggjandi svar frá seðlabankastjóra og kom í kjölfar ákvarðana peningastefnunefndar.

Ég myndi síðan segja varðandi það sem hv. þingmaður nefnir, um ástæður þess að þríhliða samtal hefur verið tekið upp við aðila vinnumarkaðarins, að það snýst auðvitað um verri verðbólguhorfur og líkur á því, eins og spá Seðlabankans lítur út núna, að forsenduákvæði kjarasamninga muni ekki halda. Það samtal hefur gengið mjög vel og verið mjög uppbyggilegt. Það voru þessir aðilar vinnumarkaðarins sem með samningum árið 2024 lögðu grunninn að því sem átti að vera aðgerðir til að ná niður verðbólgu. Það verður hins vegar að taka undir með aðilum vinnumarkaðarins að aðrir þeir sem áttu að spila með hafa ekki gert það. Ég finn hins vegar mjög sterkt fyrir vilja til að taka af fullri alvöru á því í því þríhliða samtali sem farið er af stað, sem hv. þingmaður kallar nefnd en er stýrt á efsta stigi (Forseti hringir.) og hefur mjög þröngan tímaramma vegna þess að það er í haust sem forsenduákvæðin birtast.