157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

horfur og aðgerðir í efnahagsmálum.

[10:52]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir svarið. Já, hallalaus fjárlög — ég bara fagna því ef við náum hallalausum fjárlögum. En sá afgangur sem boðaður er í fjárlögum og í fjármálaáætlun upp á 1 milljarð er nú ekki burðugt haldreipi, sérstaklega ekki í ljósi þess að verri horfur eru í íslensku efnahagslífi. Ég hef verulegar áhyggjur af því, virðulegur forseti, að sá eini milljarður sem er teiknaður upp í fjármálaáætlun muni einfaldlega ekki halda, m.a. út af verri hagvaxtarhorfum hér á landi. En spurningin er þá kannski þessi: Við höfum verið að ræða þetta hér síðan í janúar, frá því að þing kom saman, og það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á, ég geri mér grein fyrir því. En hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hefði ekki verið betra að fara fyrr af stað og vera komin lengra inn í þetta samtal þannig að tímaramminn væri meiri, eins og kallað var eftir hér í janúar, febrúar og mars?