157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

horfur og aðgerðir í efnahagsmálum.

[10:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir síðari spurninguna og verð að viðurkenna að ég er honum hjartanlega sammála. Það hefði þurft að bregðast við miklu fyrr. Nú hefur það að vísu komið fram nokkrum sinnum í máli mínu, og án þess að ég sé að benda fingri á nokkurn mann, það er enginn tilgangur í því, að örvunaraðgerðir síðustu ríkisstjórnar stóðu of lengi. Það er grunnurinn að þeim vanda sem við erum að horfa upp á. Seðlabankastjóri hefur ítrekað í máli sínu tekið fram að launaþróun á Íslandi hefur verið ósjálfbær nú um nokkurt skeið og öfugt við nágrannalöndin þá hélt það launaskrið áfram í gegnum Covid-sjokkið vegna þess að ekki var hugað að því að ekki væri rými fyrir þá 800 milljarða hvatningu sem þáverandi ríkisstjórn setti inn í hagkerfið. Ég geri mér grein fyrir því að það er auðvelt að vera vitur eftir á (Forseti hringir.) og ég er ekki að benda fingri á neinn. En hv. þingmaður spurði hvort ekki hefði verið ástæða til að bregðast við fyrr og ég tek undir hans orð. Það hefði betur verið gert á árinu 2022.