157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Reykjavíkurflugvöllur.

[10:55]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Aðeins um Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Reykjavíkurflugvöllur er ekki aðeins samgöngumannvirki fyrir höfuðborgarsvæðið heldur lykilinnviður fyrir landið allt. Þar mætast almenningssamgöngur, sjúkraflug, öryggismál, mikilvægi hans út frá almannavörnum landsins og hann er auðvitað mikilvægur varaflugvöllur, eins og sannaðist 26. febrúar síðastliðinn þegar fimm farþegaþotur Icelandair lentu í Reykjavík vegna veðurs á Keflavíkurflugvelli. Þess vegna verður öll umræða um starfsemi vallarins að byggjast á ábyrgð, fagmennsku og skýrum skilningi á þjóðarhagsmunum, skilningi á mikilvægi flugvallarins í Vatnsmýri fyrir íslenska hagsmuni.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja að starfsemi innan borgarinnar uppfylli kröfur um heilnæmi, mengunarvarnir og öryggi í nærumhverfi. Það er sjálfsagt að slíkt eftirlit sé virkt og faglegt en jafnframt verður að gæta þess að stjórnsýsla og eftirlit taki mið af því að Reykjavíkurflugvöllur er hluti af grunnkerfi landsins, ekki venjulegt staðbundið athafnasvæði sem hægt er að meta án tillits til víðtækari áhrifa. Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál, skipaður af núverandi hæstv. innviðaráðherra, hefur bent á að starfsleyfisskylda flugvalla gagnvart heilbrigðiseftirliti sé séríslensk gullhúðun á EES-reglum. Hann hefur jafnframt varað við því að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fari út fyrir valdheimildir sínar ef það reynir að takmarka lendingar eða þrengja starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Sjúkraflugið sýnir þetta skýrast þegar mínútur skipta máli. Staðsetning Reykjavíkurflugvallar er grunnatriði í því öllu saman. Aðgengi að Landspítalanum, sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og viðbragðskerfum landsins er ekki aukaatriði heldur öryggismál. Þess vegna þarf samspil borgaryfirvalda, heilbrigðiseftirlits, ríkisins og flugrekanda að vera lausnamiðað.

Nú spyr ég hæstv. innviðaráðherra: Hvernig hyggst hann bregðast við þessu ótrúlega máli sem snýr að stjórnsýslu (Forseti hringir.) Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og afskiptasemi af daglegum rekstri á Reykjavíkurflugvelli út frá þeim upplýsingum sem formaður fagráðs um flugmál hefur bent á og ráðið hefur verið að rannsaka á undanförnum mánuðum?