Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Reykjavíkurflugvöllur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir skýr svör. Ég held að það væri mikilvægt að þetta mál verði rannsakað hreint og beint vegna þeirrar afskiptasemi sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur haft af starfsemi Reykjavíkurflugvallar í ár og áratugi. Þetta er skýrara dæmi um slæma stjórnsýslu og pólitísk afskipti en í nokkru máli sem er í gangi í íslensku samfélagi. Það er náttúrlega ótrúlegt þegar menn fara að skoða þetta mál. Hafa verður í huga að Karl Alvarsson er ekki endilega venjulegur formaður, hann er einn best menntaði lögfræðingur í flugmálum í landinu. Hann er fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia. Ég hvet hæstv. ráðherra því til allra góðra mála vegna þess rugls sem verið hefur í gangi í málefnum Reykjavíkurflugvallar um langt áraskeið. Ef þetta hefði verið komið fram fyrir einhverjum árum þá værum við ekkert í þessu rugli í umræðunni sem er í gangi í dag um Reykjavíkurflugvöll. Þetta er ekkert svona flókið. Starfsemi flugvalla er ekki undir staðbundnu eftirliti heilbrigðiseftirlits viðkomandi sveitarfélags. Það er ljóst. Ég vona svo sannarlega að ráðherra taki það föstum tökum og ég hef mikla trú á að hann geri vegna þess að þetta er lykilatriði í málefnum flugs á Íslandi.