157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

ferðaþjónusta í Vatnajökulsþjóðgarði.

[11:03]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Vatnajökulsþjóðgarður er eitt af krúnudjásnum Íslands — þvílík ægifegurð. Tilgangurinn með stofnun hans á sínum tíma var sannarlega náttúruvernd en það var líka sjónarmið um að við ætluðum að byggja upp atvinnustarfsemi í heimabyggð og það var m.a. ástæðan fyrir því að ólíkir aðilar, bændur, landeigendur og sveitarfélög gerðu samninga við ríkið þegar garðurinn var stofnaður. Nú stendur yfir vinna um hvernig verður haldið áfram með þróun mála við Jökulsárlón og við leyfisveitingar almennt, sem er nauðsynlegt og vel. En hvernig slík mál og útboð verða sniðin er mikilvægt því að það getur haft grundvallaráhrif á það hvernig atvinnuuppbygging þróast, t.d. í ferðaþjónustu. Vinnur hæstbjóðandi í mögulegum samkeppnisútboðum eða eiga frumkvöðlar, sem hafa kannski lagt allt sitt undir og byggt upp smærri fyrirtæki í heimabyggð, meiri rétt?

Þessi spurning er nátengd umræðunni um það hvernig ferðaþjónustu við viljum efla. Viljum við efla ferðaþjónustu sem á djúpar rætur í heimabyggð eða skiptir hraðinn, fjöldi og gróði öllu? Viljum við ferðaþjónustu sem tengist beint sögu forfeðranna sem bjuggu jafnvel á svæðinu áður en öræfin urðu brúuð og ræktuðu forystufé sem er enn að dafna í skjóli jökulsins?

Virðulegur forseti. Þetta kann að skipta ekki miklu máli en í heimi þar sem gervigreind og fjöldaframleiðsla eru að taka allt yfir þá felast einstök verðmæti í því sem er ekta í ferðaþjónustu fyrir Ísland. Það sem heimamenn geta boðið upp á fyrir ferðaþjónustu Íslands er sannarlega ekta. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er hæstv. ráðherra sammála því að allar útfærslur varðandi leyfismál, útboð og annað eigi að tryggja lögbundin markmið þjóðgarðsins um að efla stöðu fyrirtækja á svæðinu? Hvernig mun ráðherrann tryggja slíka framkvæmd í þeirri vinnu sem nú stendur yfir? (Forseti hringir.) Og svo vil ég bæta við: Getur verið að þær tölur sem birtast nú sýni að gestir sem heimsækja Ísland séu ekki að fá það sem þeir vilja í ferð sinni (Forseti hringir.) vegna þess að við séum ekki að leggja nógu mikla áherslu á það sem er ekta, við séum ekki að tryggja nægilega mikil gæði?