þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við höldum þessari umræðu áfram um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem áætlað er að fari fram í lok ágúst. Það er fullkomlega við hæfi, virðulegi forseti, að hér í þessum þingsal hangi uppi mynd, málverk, af Jóni Sigurðssyni, sjálfstæðissinnanum og baráttumanninum Jóni Sigurðssyni. Það er eina málverkið sem heimilað er að hafa hér í þingsal. Jón Sigurðsson, oft nefndur Jón forseti, var einn helsti leiðtogi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld og til þess að minnast hans var fæðingardagur hans valinn sem sá dagur sem Háskóli Íslands var stofnaður, á árið 1911 og sem þjóðhátíðardagur Íslendinga þegar lýðveldið Ísland var stofnað þann 17. júní árið 1944. Á þessu ári eru þannig 82 ár liðin frá stofnun lýðveldisins Íslands. Og nú vilja flokkar hér á Alþingi, flokkar sem eiga sæti í ríkisstjórn, flokkar sem hafa það yfirlýsta markmið að ganga í ESB, ganga í ESB sem er yfirþjóðlegt apparat. Þjóðaratkvæðagreiðslan um aðlögunarviðræður, sem við ræðum hér í dag, er liður í því. Af þessu tilefni held ég að það sé mjög við hæfi að vitna til ávarps frá landsnefnd lýðveldiskosninganna frá því í maí 1944, með leyfi forseta:
„Landsnefnd kosninganna um niðurfall sambandslagasamningsins frá 1918 og samþykkt lýðveldisstjórnarskrár Íslands finnur sér skylt að beina til yðar, íslenzki kjósandi, þessari orðsendingu:
Á þessum dögum eru komin yfir þjóð vora hin merkilegustu og afdrifaríkustu tímamót, sem henni hafa nokkru sinni að höndum borið. Aldrei hefir þjóðinni verið jafnbrýn nauðsyn á, að sérhver fullveðja maður, karl og kona, ungur sem gamall leggist á eitt að gera skyldu sína til þess að hún fái nú endurheimt að fullu frelsi sitt og fullræði að nýju, eftir margra alda þjökun erlends valds, sem þjóðin hefir jafnan þráð að fá af sér hrundið.“
Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Alkunnugt er, hversu allur hagur þjóðarinnar hefur smám saman snúist í átt til hagsældar síðan á fyrri hluta 19. aldar, er forvígismenn vorir tóku að losa um helgreipar hins erlenda valds og hversu loks hafðist fram viðurkenning í lok fyrri heimsstyrjaldar um rétt vorn til fullveldis, svo að oss var í sjálfsvald sett að losna úr öllum böndum eftir 25 ár, eða þegar úr árslokum 1943.“
Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Allir flokkar á Alþingi hafa síðan marglýst yfir, að þeir ætli að nota uppsagnarréttinn, og hefir síðasta Alþingi afgreitt það mál af sinni hálfu til þjóðarinnar.“
Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Nú eru úrslitin um frelsi þjóðarinnar komin yður í hendur íslenzki kjósandi, hverjum yðar um sig og öllum saman. Aldrei hefir jafnmikilvægt og þjóðheilagt mál verið lagt undir yðar atkvæði eða nokkurs íslenzks kjósanda síðan land byggðist. Nú býðst yður það háleita tækifæri, sem aldrei hefir áður boðizt og mun aldrei bjóðast framar, að þér sjálfir fáið lagt yðar mikilvæga hlut í vogarskálina til þess að ná samstundis því takmarki, sem þjóðin hefur þráð um aldir, en saknað og farið á mis við, illu heilli, um nær því sjö alda skeið.
Ef þessi óskastund þjóðarinnar væri vanrækt nú, þá er ólíklegt að hún komi nokkru sinni aftur.
Höldum því saman rakleitt að settu marki. Allir eitt.“
Svo mörg voru þau orð. Hér erum við stödd í dag og erum að ræða þingsályktunartillögu meiri hlutans um áframhaldandi aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Þetta ferli er allt saman í skötulíki. Málið var ekki á þingmálaskrá þó svo að þeirri sem hér stendur sé fullkunnugt um að þeir flokkar, í það minnsta tveir, sem standa að þessari ríkisstjórn hafi það eitt markmið að ganga í Evrópusambandið. Málið var ekki sett í samráðsgátt og nú hefur það verið keyrt með afli í gegnum þingnefnd og er nú hér í síðari umræðu. Vinnubrögðin finnst mér ótraustvekjandi. Hér hefur stjórnarandstaðan verið sökuð um hræðsluáróður vegna þess að hún vogar sér að spyrja spurninga og gera athugasemdir. En ég spyr: Hver beitir hræðsluáróðri? Það er ekki stjórnarandstaðan, það er meiri hlutinn. Og þingsályktunartillagan sem hér er lögð fram er uppfull af hræðsluáróðri. Forsvarsmenn tveggja stjórnmálaflokka, Viðreisnar og Samfylkingar, hafa ítrekað, eins og ég sagði áðan, sakað stjórnarandstöðuna um að vera með hræðsluáróður. Það kalla ég að kasta steinum úr glerhúsi. Það eru þessir flokkar sem stunda hræðsluáróður og blekkingar og það er ekki hægt að halda öðru fram en að upplýsingum sé markvisst haldið frá almenningi. Upplýsingar geta nefnilega verið vopn. Að halda upplýsingum frá almenningi er grafalvarlegt mál og ég myndi ráðleggja þeim sem eru hér við stjórnvölinn að leggja öll spilin á borðið, loka þessu leyniherbergi sem er hér í húsinu. Veita fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, afrit af öllum þeim gögnum sem hann hefur óskað eftir, en utanríkisráðuneytið hefur ítrekað neitað að veita honum afrit af þeim gögnum. Það hefur ekki verið gert.
Mig langar aðeins að ræða um uppbyggingu trausts í þessu samhengi. Ef menn vilja byggja upp traust — miðað við svarleysið, leyndarhyggjuna og stælana sem hér eru oft hafðir uppi hef ég ítrekað spurt sjálfa mig hvort menn hafi engan áhuga á því að byggja upp traust. Ríkisstjórnin byggir ekki upp traust með því að svara réttmætum spurningum með stælum og gaslýsingu. Ríkisstjórnin byggir ekki upp traust með því að halda upplýsingum frá þingi og þjóð. Ríkisstjórnin byggir ekki upp traust með því að ætlast til þess að hér fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um aðlögunarviðræður við ESB án þess að fyrir liggi samningsmarkmið þessarar ríkisstjórnar — ég endurtek þessarar ríkisstjórnar. Þetta þarf að liggja fyrir áður. Þá vil ég segja sérstaklega að ríkisstjórnin verður að leggja þessi samningsmarkmið fram og upplýsa þjóðina um það hvar rauðu línurnar liggja. Frá hverju verður ekki hvikað? Þingmenn meiri hlutans forðast hér að tala um rauðu línurnar. Eru kannski engar rauðar línur? Maður spyr sig. Ég heyrði ekki betur en að einn stjórnarliði hafi sagt í pontu í umræðum dagana hér á undan, hvort það var í gær eða fyrradag, ég er ekki alveg viss, að viðkomandi vilji ekki ganga til skilyrtra umræðna við ESB. Ég skil þessi orð þannig að menn vilji ekki gefa ESB upp fyrir fram hvar rauðu línurnar liggja. Ég get ekki skilið þessi orð öðruvísi. Það hlýtur þá að þýða að það er allt opið, engar rauðar línur, bara sjá hvað hægt er að fá með því að kíkja í pakkann þegar vitað er að það er ekki hægt að semja sig frá regluverki ESB, það eru engar varanlegar undanþágur. Sérlausnir eru ekki varanlegar undanþágur, bara þannig að það sé sagt.
Ég nefndi hér áðan að utanríkisráðuneytið hefði ítrekað neitað að afhenda fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, gögn frá hans eigin ráðherratíð í utanríkisráðuneytinu. Það hefur orðið til þess að hann hefur þurft að ráða sér lögmann til að reyna að fá þessi gögn afhent. Er þetta eðlilegt? Hann ber jú ráðherraábyrgð, er ekki svo? Er það eðlilegt að fyrrverandi utanríkisráðherra sé neitað um gögn um hans eigin embættistíð? Mér finnst það ekki. Mér finnst það mjög óeðlilegt og það vekur ekki traust. Ef menn vilja að traust ríki um þetta mál þá á bara að setja allt upp á borð, m.a. afhenda fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, þau gögn sem hann óskar eftir úr hans eigin ráðherratíð. Ég er þeirrar skoðunar að það verði að varpa ljósi á þetta vegna þess að á meðan gögn eru ekki birt þá læðist að manni sá grunur, eðlilega, að hér liggi fiskur undir steini. Þetta snýst um traust. Ég segi því: Þessi gögn á að afhenda strax. Talsmenn aðildar að ESB hafa oft í sinni röksemdafærslu borið saman aðild Íslands að NATO, EFTA og svo EES og svo mögulega aðild Íslands að ESB. En við skulum hafa eftirfarandi á tæru: NATO-aðild er ekki yfirþjóðlegt bandalag ríkja. EFTA er ekki yfirþjóðlegt bandalag ríkja. EES er ekki yfirþjóðlegur samningur sem þó var mjög umdeildur á sínum tíma og hefði til að mynda mjög ólíklega verið samþykktur hér á Alþingi ef bókun 35 hefði verið innleidd með þeim hætti sem Viðreisn og Samfylking ætla sér nú og margir telja að krefjist stjórnarskrárbreytinga. Ekkert af framangreindu er sambærilegt því sem við ræðum nú, aðlögunarviðræður að ESB sem markmið Viðreisnar og Samfylkingar er að endi í aðild Íslands að þessu yfirþjóðlega batteríi. Þessu tekur Flokkur fólksins þátt í sem hingað til hefur verið andvígur aðild að ESB. Flokkur fólksins gæti stöðvað þessa vitleysu hér og nú og ég hvet þann flokk til að íhuga sína stöðu vandlega við ríkisstjórnarborðið vegna þess að ábyrgðin er mikil. Evrópusambandið er yfirþjóðlegt apparat og möguleg aðild að því krefst m.a. breytinga á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og er þess vegna fullkomlega ósambærileg aðild Íslands að NATO, EFTA, EES eða Schengen, eða það er hægt að nefna hvaða fyrirbæri sem er. Þetta er bara allt annað mál.
Tíminn líður svo hratt að ég ætla að færa mig yfir í landbúnaðinn. Ég ætlaði að verja svolitlum tíma í að ræða hann í þessari ræðu minni. Kaflarnir sex sem voru ekki opnaðir þegar aðlögunarviðræðunum lauk síðast sneru að staðfesturétti og þjónustufrelsi, fjármagnsflutningum, landbúnaði, sjávarútvegi og dóms- og innanríkismálum. Ég vil segja að ég tel nauðsynlegt, aftur talandi um traust, að utanríkisráðherra Viðreisnar eða forsætisráðherra eða formaður utanríkismálanefndar eða einhver í stjórnarliðinu upplýsi þjóðina, sem menn segjast treysta svo vel, um það hvaða skilyrði af hálfu ESB gerðu það að verkum að ekki var unnt að opna þessa kafla. Hver voru opnunarskilyrðin í landbúnaðarkaflanum? Ég spyr: Eru opnunarskilyrði nú 15 árum seinna uppfyllt fyrir þann tiltekna kafla eða aðra kafla sem ekki voru opnaðir? Þessu hef ég ekki fengið svör við og ég hef spurt í nokkur skipti. Og meira um landbúnað: Hér í gær flutti Heiðbrá Ólafsdóttir mjög góða ræðu sem fjallaði að mestu um landbúnað, og það var vel. Sú framsetning sem birtist í nefndaráliti meiri hlutans hlýtur að mínu viti að vera mikill hvati fyrir hinar dreifðu byggðir landsins, bændur og þá sem stunda innlenda matvælaframleiðslu, til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Ég ætla að segja ykkur hvers vegna. Hér segir nefnilega í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn telur mikilvægt að búa svo um hnútana ef til aðildar Íslands að ESB kæmi að áfram yrði tryggt að hér yrði hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis, matvælaöryggis og byggðasjónarmiða. Þar yrði lykilatriði að stuðningur yrði nægjanlegur til að vega upp erfiðar framleiðsluaðstæður samanborið við annars staðar innan ESB.“
Hlustið þið nú:
„Á hinn bóginn myndu verða breytingar á stuðningsforminu, m.a. þar sem gera verður ráð fyrir að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB.“
Heyrið þið þetta: Gera yrði ráð fyrir að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB. Þarna eru engar undanþágur. Þarna á ekki að reyna neitt. Það á bara að fella niður tollverndina sem er svo mikilvæg íslenskum landbúnaði. Allar þjóðir vernda sinn landbúnað. Horfum til Noregs. Það er ákvörðun að hafa landbúnað og dreifðar byggðir. Það er ákvörðun og það þarf tollvernd. Bara þetta eitt segir mér að það mun aldrei henta hinum dreifðu byggðum, bændum, innlendri matvælaframleiðslu — tölum um fæðuöryggi; þetta hentar ekki stórum hluta landsmanna. Nú munu einhverjir tala um Finna og Svía og hvað þetta hafi allt verið frábært þegar þeir fengu einhverjar sérlausnir. Staða bænda í þessum löndum er ekki góð og hún versnaði.
Ég segi aftur: Átta menn sig ekki á mikilvægi tollverndar fyrir íslenskan landbúnað, fyrir innlenda matvælaframleiðslu og fæðuframleiðslu og fyrir byggð í þessu landi? Þetta er innlend matvælaframleiðsla sem snýr að fæðuöryggi og fæðuöryggi er þjóðaröryggismál. Ef innlend matvælaframleiðsla verður ekki lengur við lýði, ef það er markmiðið, þá verður hér ekki þjóðaröryggi. Við skulum bara nefna það sem dæmi. Innflytjendur matvæla, vöruhúsin í Reykjavík, munu bústna á kostnað innlendrar framleiðslu, á kostnað bænda og landsbyggðar. Mig langar að vitna hér aðeins til umsagnar Bændasamtaka Íslands, með leyfi forseta:
„Engin ný aðildarríki hafa fengið varanlegar undanþágur frá grunnreglum sambandsins enda myndi slíkt krefjast breytinga á stofnsáttmálum ESB og samþykkis allra aðildarríkja. Þær varanlegu undanþágur sem hafa verið gefnar voru veittar undir allt öðrum kringumstæðum og ekki í samræmi við núgildandi stækkunarstefnu sambandsins.“
Bændasamtökin, sem eru hagsmunasamtök bænda, telja hag bænda og hinna dreifðu byggða — telja þetta ekki samrýmast hagsmunum innlendrar matvælaframleiðslu og eru því andvíg. Þing og þjóð eiga rétt á heiðarlegum upplýsingum og þing og þjóð eiga rétt á því að spurningum sé svarað þannig að þjóðin í þessu landi geti tekið upplýsta ákvörðun í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Samningsafstaða sitjandi ríkisstjórnar, ekki bara Jóhönnustjórnarinnar hinnar fyrri, og rauðar línur verða að liggja fyrir áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram í ágúst. Annað er blekkingarleikur til þess, að því er virðist, að fá þjóðina til að greiða atkvæði með því að kíkja í pakkann. Ég ætla að segja nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu.