þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Þetta var kannski sá hluti sem ég komst ekki yfir í ræðu minni hér í gær, þ.e. einmitt að stjórnsýslan mun öll fara undir þessar viðræður í a.m.k. 18–24 mánuði. Við þekkjum það að á árunum 2009–2013, á viðkvæmum árum hér á landi eftir fjármálahrunið, var kannski ekkert frábært að vera með stjórnsýsluna bara í þessu máli. Hún gat að mörgu leyti ekki einbeitt sér almennt að því sem þurfti að gera í landinu. Þó að mörgum finnist stjórnsýslan of stór þá er hún kannski ekkert svo stór til að takast á við það að fara í samninga um svona gríðarlega stórt og mikið mál. Það er það sem ég náði ekki að koma inn á í ræðu minni í gær, það sem snýr að þessu. Ég vildi bara spyrja hvort hv. þingmaður hefði einhver dæmi úr störfum sínum á þeim tíma um hvernig þetta atvikaðist. Allur fókus utanríkisþjónustunnar var þar undir, sem sneri að þeirri samningagerð, þegar menn ætluðu þá inn, en það kom kannski niður á öðrum málum.