þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisgott seinna andsvar. Hann talar um landbúnaðinn og Covid í því sambandi og lækkun matvælaverðs. Ég veit ekki hvort þingmaðurinn hefur tekið eftir því en í nefndaráliti meiri hlutans kemur hreinlega fram að þessi ríkisstjórn ætli að gangast undir það að afnema tollvernd fyrir vörur frá Evrópusambandinu til Íslands, hún ætli að afnema tollvernd. Það mun gerast strax við inngöngu. Og er það gott fyrir bændur? Nei, það hefur ekki verið gott fyrir bændur, hvorki í Finnlandi né Svíþjóð, þó svo að menn reyni að halda öðru fram. Bændur þar hafa borið minna úr býtum. Þessi ríkisstjórn er bara búin að henda inn handklæðinu.
Ef innlend matvælaframleiðsla leggst af eða dregst svo mikið saman að ekki verður við unað þá er ekkert hægt að tala um þjóðaröryggi hér. Það er ekki þjóðaröryggi. Innlend matvælaframleiðsla, fæðuöryggi, er hluti af þjóðaröryggi. Ef við framleiðum ekki fæðuna sjálf og leyfum púkanum á fjósbitanum að fitna, innflutningsaðilum á matvælum, þá verður hér hvorki fæðuöryggi né þjóðaröryggi.