þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hræðslan ríður ekki við einteyming. (Gripið fram í.) En við skulum skoða söguna. Ég ber mjög mikla virðingu fyrir fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins, Steingrími Hermannssyni, sem fór í viðræður ásamt Jóni Baldvini Hannibalssyni um sjávarútvegsmál þegar EES-samningurinn var í vinnslu. Í fyrstu leit ekki út fyrir að Íslendingar fengju undanþágu frá sjávarútveginum í þeim samningaviðræðum. Hvernig enduðu þær samningaviðræður? Við fengum undanþágu. Forráðamenn Evrópusambandsins hafa einmitt sagt að það komi til greina að Íslendingar fái undanþágur. Það liggur fyrir, hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. (NMG: Ekki varanlegar. )Það liggur fyrir að það geti verið undanþágur í spilinu. (Gripið fram í: Ekki varanlegar. )Hversu lengi á eftir að koma í ljós (Gripið fram í.) en það gerist í samningaviðræðum. Ég hef fulla trú á því að við fáum langvarandi undanþágur í sjávarútvegsmálum vegna þess að við höfum enga sameiginlega fiskstofna með öðrum Evrópusambandsþjóðum.
Það væri hins vegar freistandi í þessu efni að spyrja hv. þingmann, en líka ósanngjarnt vegna þess að hún getur ekki komið hérna aftur upp: Aðlögun. Við erum á hverjum einasta degi hér í þessu þinghúsi að laga okkur að Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Á hverjum einasta degi erum við að laga okkur að Evrópusambandinu. Hvers vegna vill Miðflokkurinn, og eftir atvikum Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, ekki ganga úr Evrópska efnahagssamningnum? Af hverju í ósköpunum? Ef aðlögun er svona hættuleg, hvers vegna í ósköpunum vilja þeir þá ekki ganga úr Evrópska efnahagssamningnum og tala þá hreint út? Þversögnin í málflutningi þessa fólks er alger.