þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Og hv. þingmaður fær hér svar frá skáldi og rithöfundi raunar líka sem hefur skrifað fjöldamargar ævisögur, þar á meðal um þetta efni, svo dæmi sé tekið. En lítum á söguna hvað undanþágur varðar. Hver er sagnfræðin? Ég gat þess í fyrri ræðu minni í dag að einmitt þegar við vorum að gera samninginn um Evrópska efnahagssvæðið þá var útlit fyrir að við fengjum ekki undanþágu, varanlega undanþágu í sjávarútvegsmálum en á endanum fékkst hún, reyndar með því að koma sjávarútveginum inn iðnaðarmegin í þann kafla samningsins sem lýtur að undanþágum. Þannig að sagnfræðin segir okkur að þetta er möguleiki. Forráðamenn Evrópusambandsins segja sömuleiðis að undanþágur séu mögulegar. Hlustum á svar þeirra en ekki þann blekkingaleik og það moldviðri sem minni hlutinn hefur þyrlað upp hér í þessum sal við þetta mál af hræðslunni einni saman, af óttanum einum saman við það að athuga hvort við gætum haft það betra.