157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir prýðiserindi, ekki síst þann hluta erindisins hjá hv. þingmanni sem var ákall um að framkvæmdarvaldið og Alþingi skiluðu raunverulega öllum upplýsingum um málið áður en þau krefjast þess að almenningur í landinu taki afstöðu. Það er grundvallaratriði í þessu máli.

Svo langar mig að fara hér aðeins í að velta upp með hv. þingmanni öllum þessum hugtökum. Nú er umræðan búin að þroskast aðeins, hún á vonandi eftir að þroskast meira því að margir þingmenn eiga þó enn eftir að halda sína fyrstu ræðu svoleiðis að við erum ekkert nálægt því farin að heyra allar mögulegar nálganir á málið. En í þessari hugtakaumræðu sem tók óvænta stefnu, herra forseti, hér fyrr í dag þegar hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson kom með hugtakið langvarandi undanþágur sem vakti sérstaklega athygli hjá mér. Ég spurði hv. þingmann út í muninn á því annars vegar og svo hins vegar varanlegri undanþágu frá stofnsáttmála Evrópusambandsins sem á ekkert skylt við langvarandi undanþágur, sérlausnir eða aðlögunartímabil, heldur er grundvallarhugtak sem virðist einhvern veginn ekki ná að kjarna sig inni í umræðunni og er algjört lykilatriði í þessari umræðu, burt séð frá skoðunum manna um það hvort þeir vilji ganga í Evrópusambandið eða ekki. Það virðist ekki vera til staðar fullnægjandi skilningur á því hvað þetta þýðir; að fá varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins krefst þess að 27 aðildarríki kvitti upp á það að Ísland fái undanþágu í (Forseti hringir.) öllum þeim málaflokkum sem varða íslenska þjóð mest.

Mig langar að biðja hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson að velta þessu upp með mér og kannski renna yfir svo að fólk átti sig á því (Forseti hringir.) hvaða málaflokkar það eru. Það er ekki bara sjávarútvegurinn.