157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir andsvarið. Eins og við sem höfum fylgst með þessari umræðu hér síðustu daga gerum okkur grein fyrir er orðið ljóst að hv. þingmaður er mjög vel inni í þessum málum og hefur sett sig mjög vel inn í þetta. Áður en ég svara spurningu hv. þingmanns þá er það náttúrlega þannig að fyrir okkur sem höfum fylgst með þessari umræðu virðist vera einhver grundvallarmisskilningur hér á ferðinni í málinu að mínu mati. Grundvallarmisskilningurinn liggur í því þegar kemur að upplýsingum og aðgengi að gögnum. Þegar hv. utanríkismálanefnd er að kalla eftir því að fá gögn í málið til þess að hægt sé að varpa betra ljósi á um hvað málið snýst, hvað er búið að semja um, hvað er búið að vera að ræða um þegar kemur að þessum varanlegu eða langvarandi undanþágum, eins og hv. þingmaður nefndi hér, að það sé lokað inni í einhverju herbergi sem aðeins fulltrúar utanríkismálanefndar hafi aðgang að og að þannig sé upplýsingaskyldunni fullnægt. Þetta er grundvallarmisskilningur. Það er ekki Alþingi sem er að fara að kjósa um málið heldur þjóðin. Þegar staðan er þannig að sá meiri hluti sem hér ræður ríkjum og ferð í þinginu telur að með því að sýna örfáum þingmönnum eða veita þeim aðgang að þessum upplýsingum að þannig sé upplýsingaskyldunni fullnægt, þegar það er í raun og veru þjóðin (Forseti hringir.) sem á að taka ákvörðun um málið, lýsir það ákveðinni skekkju, ákveðinni brenglun og ákveðnu skilningsleysi á málinu.