þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í þessu svari held ég nefnilega að vandinn kjarnist. Okkur virðist ekki vera að takast að koma þeim skilaboðum einhvern veginn — það er í tísku í dag, herra forseti, ég veit ekki hvort ég má nota þetta orð í ræðustóli en fæ þá ávítur ef svo er ekki — út í feltið, þetta er nýtt tískuorð. Það virðist ekki vera að takast að koma þessum upplýsingum nægilega vel inn í þennan þingsal og hvað þá út í umræðuna. Að leyfa ekki og láta ekki minni hlutann hér komast upp með þetta orðskrúð, þessa orðleikfimi, og jafnvel nýyrði eins og ég nefndi hér áðan varðandi langvarandi undanþágur. Sérlausnir: Hér er vitnað til hluta án þess að greina frá afleiðingum, samanber lausnir sem Svíar og Finnar fengu í landbúnaði og hvaða afleiðingar það hafði. Ég endurtek og kannski með aðeins annarri nálgun, hv. þm. Stefán Vagn: Hvernig eigum við að tryggja að hinn almenni kjósandi skilji hvað varanleg undanþága frá stofnsáttmála Evrópusambandsins raunverulega þýðir?