þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Það sem gerist í svona umræðu eins og hér er að hún tekur alltaf nýjar og nýjar myndir á sig og það kemur alltaf meira og meira í ljós. Umræðan verður alltaf skýrari. Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra endurtók það hér í dag í óundirbúnum fyrirspurnum að forsætisráðherra myndi ekki koma heim með samning ef hann væri lélegur. Hún metur það þá úti þegar hæstv. utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnardóttir er búin að semja þá mun hæstv. forsætisráðherra ritskoða samninginn og ákveða hvort hann verður borinn undir þjóðina. Þetta er náttúrulega ekki eðlilegt. En það sem hefur komið í ljós, og mig langar að segja, og ég biðst afsökunar á að hafa ekki svarað spurningu hv. þingmanns betur, er að það er alltaf að koma í ljós að auðvitað eru engar varanlegar undanþágur. (Forseti hringir.) Af hverju heldur þú að hv. þingmenn séu farnir að tala um langvarandi undanþágur? Það er vegna þess að það er ekkert annað í boði.