þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni kærlega fyrir mjög góða spurningu. Þetta er náttúrlega ein af þessum kjarnaspurningum sem við þurfum að svara í þessu máli, af hverju Evrópusambandið hafi ekki komið til okkar og beðið okkur um að sækja um aðild. Hvað vitum við hvað er í þessum gögnum? Vitum við eitthvað um það? Hvenær hófst samtalið? Við vitum bara ekkert um það. Það er náttúrlega mjög sérstakt, virðulegur forseti, þegar það er verið að tala um hér að við séum að fara að byggja á þeim samningi og þeim samningsgrunni sem við hófum 2011, ef ég man rétt, um aðild Íslands að Evrópusambandinu og við ætlum að halda þeim viðræðum áfram. Við erum að fara að halda þeim viðræðum áfram, um það snýst málið. Við höfum sett okkur samningsmarkmið sem við ætlum þá að halda áfram með. Ég skil þetta ekki vegna þess að ég hef tekið þátt í að gera samninga og auðvitað eru samningsmarkmiðin misjöfn eftir því í hvaða samningsstöðu þú ert, þannig að mér finnst spurning hv. þingmanns mjög viðeigandi. Við eigum bara að eyða miklu meiri tíma nákvæmlega í þennan vinkil málsins. Við hljótum og eigum að geta sett okkur miklu háleitari og stærri samningsmarkmið og miklu meiri kröfur gagnvart Evrópusambandinu í sterkri stöðu heldur en við gerðum þegar við vorum í veikri stöðu. En við erum að fara að halda áfram með þau samningsmarkmið. Ég vona að þetta svari spurningu hv. þingmanns. En ég þakka fyrir spurninguna, hún er virkilega mikilvæg.