157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:46]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir svörin og er sammála honum varðandi mikilvægi þess að við íhugum hver okkar samningsstaða er. Mig langar einnig til að nota þennan stutta tíma sem ég hef hér til þess að velta því upp við hv. þingmann að við erum að fara í gegnum þetta ferli og eins og staðan er núna erum við að sjá hvar helstu veikleikar eru hér á landi og hvar við mögulega getum bætt okkur á þeim sviðum. Þá langar mig til að velta því upp, af því ég veit að hv. þingmaður er í fjárlaganefnd og verkefnið er augljóst hjá ríkisstjórninni, það er í rauninni að takast á við nákvæmlega þær áskoranir sem við þurfum að uppfylla til að komast inn í Evrópusambandið: Af hverju erum við þá ekki að fókusera á þann punkt málsins og byrja á því hérna heima að laga til (Forseti hringir.) og búa til þær efnahagslegu aðstæður að það væri raunverulega hægt að sækja um á jafnréttisgrunni?