þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir andsvarið. Vextir munu ekkert lækka á Íslandi ef við gengjum í Evrópusambandið einir og sér, það er engin fullvissa fyrir því. Við munum aldrei ná að ganga í Evrópusambandið nema við séum búin að taka til hér heima. Við uppfyllum ekki Maastricht-skilyrðin. Ef okkur lánast það, sem ég vona að gerist, og við náum að uppfylla þau skilyrði sem taka m.a. á verðbólgu og vöxtum — ef ég man rétt höfum við 1,2% eða 1,5% viðmið frá því markmiði sem Evrópusambandið setur sér yfir einhvern tíma. Þá er spurningin náttúrlega þessi — þá eru þau rök farin. Ef við værum komin á þann stað að við værum búin að ná tökum á efnahagsmálunum og þar á meðal vaxtaumhverfinu og verðbólgunni, ef hagvöxtur hér væri orðinn jákvæður og stöðugur og öflugur, eins og hann hefur verið lengst af, og atvinnuleysi lítið, þá væri alla vega ekki neitt að sækja til Evrópusambandsins varðandi eitthvert efnahagslegt skjól. Þá væru þau rök bara farin. Það gengur því ekki að mínu viti að nota þau rök ein og sér fyrir inngöngu í Evrópusambandið. Auðvitað er vandamálið hér að við erum með of háa vexti núna. Við vorum hér um langt skeið með vexti sem voru innan vikmarka Seðlabankans, um töluvert langt skeið, og íslenska krónan hefur yfir síðustu tíu ár verið stöðugri en evran. Þetta gleymist svolítið í umræðunni. En auðvitað þarf að horfa á þetta allt saman heildstætt. Vextir eru bara einn hluti af efnahagskerfinu og þú getur ekki tekið einn þátt út og skilið hann án þess að taka tillit til annars.