157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:12]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðissvar við mínu andsvari. Það er margt sem er hægt að spyrja um í þessu og það sem brennur kannski á mér núna og mig langar að fá sýn hv. þingmanns á er að menn tala um upptöku evru eins og það sé bara eitthvað sem menn geti gengið í einn, tveir og þrír. Við þurfum að uppfylla þessi Maastricht-skilyrði áður en möguleg evruupptaka gæti orðið staðreynd og svo má kannski líka minnast á það og tala um það að Svíþjóð, Pólland og Tékkland eru lönd sem hefur gengið verulega vel innan ESB, en ekkert af þessum löndum er með evruna og þau hafa ítrekað kosið sig frá evrunni til þess að geta tekist á við hagsveiflur sinna landa. Auðvitað eru ríkin innan ESB ólík og það eru alls konar hagsveiflur sem geta komið þar og hvað þá hjá okkur Íslendingum. Við erum auðlindadrifið hagkerfi þar sem getur orðið loðnubrestur og við getum lent í því að ferðamannaiðnaðurinn taki dýfu og við þurfum að geta brugðist við.

En spurningin er: Telur hv. þingmaður að við getum með réttri stjórn náð niður vöxtum og verðbólgu þannig að við uppfyllum Maastricht-skilyrðin? Ef þau eru uppfyllt, til hvers þurfum við þá evru? Þannig að spurningin er: Ef hér væri ríkisstjórn við völd sem hefði tök á efnahagsmálunum, en ekki eins og núverandi ríkisstjórn sem er með allt lóðrétt niðrum sig í þeim málum, ef hér væri hægt að ná tökum á ríkisfjármálunum með réttri ríkisstjórn, þyrftum við þá evru?