þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mér þykir það ekki ósiður að menn spyrji spurninga jafnvel þótt þeir séu að svara andsvari. Mér finnst fólk stundum vera pínu kassalaga í því hvernig þeim finnst að það eigi að nota þessi andsvör. Ég skil þingsályktunartillöguna og þennan hluta þingsályktunartillögunnar eða greinargerðarinnar sem hv. þingmaður las upp þannig að það sé verið að segja að við munum aldrei fara inn í Evrópusambandið nema þjóðin samþykki það í seinni atkvæðagreiðslu. Það útilokar hins vegar ekki að það verði engin seinni atkvæðagreiðsla ef þau samningsmarkmið sem lagt er upp með nást ekki. Ef við leggjum fram einhver samningsmarkmið, sem eru hluti af þeim upplýsingum sem liggja fyrir þegar þjóðin gengur til atkvæða, og náum þeim síðan ekki þá sé ég ekki tilganginn með því að leggja þann samning fyrir þjóðina. Við náðum einfaldlega ekki að gera það sem við lögðum upp með að gera. Aftur á móti gulltryggir þetta að við munum aldrei ganga inn nema það verði þessi síðari þjóðaratkvæðagreiðsla þannig að í því tilfelli sem það verður ekki seinni þjóðaratkvæðagreiðsla verður það af því að okkur tókst ekki að landa ásættanlegum samningi. Mér finnst sá skilningur alveg rúmast innan þess orðalags sem má finna í greinargerðinni og sem hv. þingmaður las upp.
Ég vil líka ítreka, af því að hv. þingmaður talaði um að þjóðarviljinn hefði komið skýrt fram í þingkosningum og það væri ekki meiri hluti á þingi fyrir aðild, að það hefur sömuleiðis ekki verið meiri hluti árum saman fyrir því að draga umsóknina til baka. Þess vegna var sent bréf án umboðs Alþingis í tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og það hafa verið lagðar fram þingsályktunartillögur um að draga til baka umsóknina sem hefur ekki verið tryggður meiri hluti fyrir, til að mynda í tíð seinustu ríkisstjórnar. Það er að einhverju leyti kjarni málsins að við erum hér í eitt skipti fyrir öll að höggva á þennan hnút og draga fram hver vilji þjóðarinnar er í þessu máli þar sem hefur ekki verið meiri hluti fyrir hvorki að klára viðræðurnar né að slíta þeim.