157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:40]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og skýringarnar. Mínar athugasemdir lutu ekki síst að annars vegar þeim ummælum hæstv. forsætisráðherra, sem eru nú ekki glæný þannig að fólk hefur haft tíma til að móta sér afstöðu til þeirra, að hún hafi ekki í hyggju að leggja fram samning sem henni þyki ekki sæma. En hér fyrr í dag í þingsal fjallaði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að vonlaus samningur, eins og það var orðað, yrði ekki lagður fram í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem sagt samningur sem stjórnarflokkarnir standa ekki með. Það var þetta orðalag sem vakti athygli mína og vekur upp spurninguna: Ef slíkur samningur nýtur ekki stuðnings t.d. Flokks fólksins, sem er andsnúinn aðild að Evrópusambandinu, verður hann þá ekki lagður fram í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu? Það er spurningin mín um það hvernig beri að skilja þessa yfirlýsingu. Þetta er býsna áleitin spurning vegna þess að ef maður tekur afstöðu flokksins núna, og auðvitað getur hún breyst, þá getur maður þar með gefið sér út frá þessari yfirlýsingu að mjög ólíklegt sé að þessi samningur verði lagður fram í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu, ef marka má þessa yfirlýsingu hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra þarf því í raun og veru að skýra betur hvað er átt við með þessu og hvort þetta sé afstaða gervallrar ríkisstjórnarinnar. Það verður auðvitað æðiumdeilt á öllum stigum máls hvort þessi samningur sé fullnægjandi eða ekki og það verður alveg umdeilt í samfélaginu jafnt inni í stjórnmálunum, en ef það er krafa að stjórnarflokkarnir allir styðji samninginn til þess að yfirleitt verði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu þá finnst mér það tíðindi.