157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:43]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Við ræðum hér í síðari umræðu tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta er stórt mál og það er ekki smámál að spyrja þjóðina hvort við eigum að kanna til hlítar hvers konar aðildarsamningur gæti staðið Íslandi til boða. Einmitt þess vegna er þetta rétt leið. Það er rétt að þjóðin fái að segja sitt um hvort leggja eigi af stað í þessa vegferð eða ekki og það er jafnframt rétt að ef samningur næst sem uppfyllir þau skilyrði sem lagt er upp með í þingsályktunartillögunni og í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar þá sé það aftur þjóðin sem segi til um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið eða ekki.

Árið 2009 var sótt um aðild að Evrópusambandinu þegar nokkuð ákall var um slíkt í kjölfar efnahagshrunsins. Ég tel að sú ákvörðun hafi átt rétt á sér en í baksýnisspeglinum tel ég líka að betra hefði verið að sækja fyrst um skýrt umboð þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Árið 2013 tók síðan við ný ríkisstjórn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, nú hv. þingmanns, og Bjarna Benediktssonar. Sú stjórn hafði lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna en sveik það loforð. Í staðinn var sent bréf, virðulegi forseti. Hér hefur verið mikið rætt um málsmeðferð og við skulum rifja það upp að þegar þetta bréf var sent hafði ríkisstjórnin hvorki samráð við utanríkismálanefnd né Alþingi með þeim hætti sem eðlilegt hefði verið og þingsköp gera ráð fyrir. Sú ríkisstjórn gat ekki einu sinni fengið samþykkta þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka því það var ekki meiri hluti fyrir því á Alþingi. Þannig hefur þessi spurning legið yfir íslenskum stjórnmálum árum saman. Fyrst var sótt um aðild að Evrópusambandinu án skýrs lýðræðislegs umboðs frá þjóðinni. Síðan var reynt að slíta ferlinu með bréfi án skýrs lýðræðislegs umboðs frá þjóðinni. Eftir stendur spurningin sem aldrei hefur verið svarað með beinum hætti: Vill þjóðin að Ísland láti á það reyna hvort hægt sé að ná viðunandi aðildarsamningi við Evrópusambandið eða vill hún það ekki? Þessi spurning hefur klofið þjóðina og legið í loftinu allt of lengi. Þennan hnút erum við að höggva á hér.

Virðulegur forseti. Í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er verið að leggja til erum við ekki að kjósa um hvort við göngum í Evrópusambandið eða ekki. Við verðum að kjósa um hvort hefja eigi viðræður að nýju. Ef samningar nást verður sá samningur lagður fyrir þjóðina í síðari atkvæðagreiðslu. Ef þjóðin hafnar þeim samningi verður ekkert úr aðild. Ef þjóðin samþykkir hann verðum við aðilar að Evrópusambandinu. Þetta er ekki flókið. Hér eru engar blekkingar á ferð. Þetta er einfaldlega lýðræði.

Eftir vandaða umfjöllun í bæði utanríkismálanefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd liggur fyrir þinginu tillaga um að breyta spurningunni sem lögð verður fyrir þjóðina. Upphaflega var lagt til að spurt yrði hvort halda ætti áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Meiri hluti utanríkismálanefndar leggur nú til að spurt verði: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? og að svarmöguleikarnir verði einfaldlega já og nei. Ég styð þessa breytingu en ekki vegna þess að ég telji að upphafleg spurning hafi verið röng eða gölluð. Íslensk stjórnvöld hafa sagt að þau líti svo á að hægt sé að halda áfram með aðildarviðræðurnar sem farið var af stað með árið 2009. Forsvarsmenn Evrópusambandsins hafa tjáð sig með sama hætti. Þaðan hafa okkur borist þau skilaboð að Evrópusambandið líti svo á að umsóknin sé virk og að hægt sé að halda áfram. Í ljósi þess að þetta eru þeir einu tveir aðilar sem munu sitja við samningaborðið og báðir segja að hægt sé að halda áfram þá er það minn skilningur að hægt sé að halda áfram.

Mat landskjörstjórnar var að þetta væri aftur á móti ekki skilningur allra og að spurningin þyrfti þar af leiðandi að vera opnari og hlutlaus gagnvart mismunandi skilningi fólks á stöðu aðildarviðræðnanna. Ég fellst á þessa röksemdafærslu og styð því tillögu meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og meiri hluta utanríkismálanefndar.

Nýja spurningin tekur mið af þeirri staðreynd að viðræður fóru fram á árunum 2009–2013 en hún tekur líka mið af því að það er langur tími liðinn og það er ekki hægt að láta eins og ekkert hafi breyst. Við erum ekki að fullyrða að hægt sé að ýta á einn takka og halda nákvæmlega áfram þar sem frá var horfið en við erum heldur ekki að láta eins og fyrri vinna hafi ekki átt sér stað eða hafi gufað upp. Hvorugt væri rétt.

Hér er að mínu mati prýðisfínt dæmi um vel heppnaða þinglega meðferð. Sérfræðingar eru kallaðir að borðinu, mismunandi sjónarmiðum er velt upp og málinu breytt í samræmi við það í meðförum nefndarinnar. Stjórnarandstæðingum hefur verið tíðrætt um það að þingið eigi ekki að vera stimpilpúði fyrir framkvæmdarvaldið og að þau telji að málum hér sé jafnvel allt of sjaldan breytt. Svo fáum við mál eins og þetta, þar sem því er breytt í meðförum þingsins og þá heyrum við suma stjórnarandstæðinga reyna að mála upp þá mynd að málið sé þar af leiðandi gallað. Þingmenn minni hlutans þurfa að ákveða sig í hvorn fótinn þeir ætla að stíga. Þessi hlið málsins sem snýr að orðalagi spurningarinnar tók jafnframt, að mínu mati, skondna beygju í gær þegar sjálfur formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, sagði í ræðu sinni að spurningin ætti að vera: Vilt þú ganga í Evrópusambandið? Og af hverju er þetta skondið? Jú, því að það var einmitt formaður Sjálfstæðisflokksins sem lagði á það ríka áherslu að leitað yrði álits Feneyjanefndar og það var gert enda bara fín tillaga. Það kom einmitt skýrt fram í áliti Feneyjanefndarinnar að það væri ekki hægt að spyrja um aðild í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að við vitum ekki hvað aðildarsamningur myndi fela í sér. Við vitum ekki hver niðurstaðan gæti orðið í sjávarútvegsmálum. Við vitum ekki hver niðurstaðan gæti orðið þegar kemur að landbúnaði. Við vitum ekki hver niðurstaðan gæti orðið í byggðamálum, framlagsmálum, gjaldmiðilsmálum eða öðrum þeim samningsköflum sem ekki heyra undir EES. Feneyjanefndin leggur einmitt áherslu á að kjósendur verði að vita að þessi atkvæðagreiðsla felur ekki í sér að kosið sé um aðild. Hún felur í sér ákvörðun um hvort viðræður fari fram, sem er allt annað. Að spyrja núna: Viltu ganga í Evrópusambandið? er í rauninni að biðja þjóðina að taka afstöðu til samnings sem er ekki til. Það er ekki upplýst ákvörðun. Það er ekki vönduð málsmeðferð. Það er ekki það sem við eigum að gera þegar svona stórt mál er annars vegar.

Virðulegi forseti. Ég styð ekki einungis þá þingsályktunartillögu sem hér er til umræðu og að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin heldur er ég einnig eindreginn stuðningsmaður þess að aðildarviðræðum verði haldið áfram og mun ég segja já þann 29. ágúst nk. Stóra spurningin sem einhver eins og ég þarf kannski að svara er: Af hverju ættum við að vilja kanna þetta? Af hverju ættum við að vilja sjá samning? Ein ástæðan er gjaldmiðillinn. Við Íslendingar búum við örmynt, það er staðreynd. Það er stundum talað eins og krónan sé venjulegur gjaldmiðill í venjulegu hagkerfi en hún er það ekki. Hún er örgjaldmiðill lítils, opins og sveiflukennds hagkerfis. Markaðurinn er lítill og sveiflur þar af leiðandi meiri en á stærri myntsvæðum. Til að láta þetta allt saman ganga, af því að krónan er ekki venjulegur gjaldmiðill, notumst við við verðtryggingu sem er algerlega óþekkt fyrirbæri í okkar nágrannalöndum. Jafnframt höldum við í dag úti 1.000 milljarða kr. gjaldeyrisvaraforða sem kostar svo milljarða á hverju einasta ári að viðhalda. Við þurfum oft að búa við hærri vexti en nágrannalönd okkar, jafnvel þegar verðbólgan er svipuð. Ástæðan er sú að það er ekki bara verið að verðleggja verðbólguna sjálfa heldur krónuna sjálfa. Það er verið að verðleggja gengisáhættu, sveiflur, trúverðugleika, stærð markaðarins og þann kostnað sem fylgir því að fjármagna heimili og fyrirtæki í lítilli mynt. Þegar lánveitandi lánar í íslenskum krónum tekur hann aðra áhættu en sá sem lánar í evrum. Sú áhætta birtist í vöxtum. Þegar óvissa eykst hér birtist hún hraðar í genginu. Þegar gengið veikist hækkar innflutningsverð, verðbólga eykst og Seðlabankinn þarf að bregðast við. Þetta er vítahringur sem íslensk heimili þekkja allt of vel. Þetta birtist í greiðslubyrði ungs fólks sem vill kaupa sína fyrstu íbúð. Þetta birtist í fjárfestingarákvörðunum fyrirtækja. Þetta birtist í rekstri sveitarfélaga, á húsnæðismarkaðnum og í þeirri stöðugu óvissu sem við höfum lært að kalla eðlilega þótt hún sé það ekki.

Evran myndi ekki leysa öll vandamál Íslands, það má ekki halda því fram. Við þyrftum áfram agaða ríkisfjármálastefnu. Við þyrftum aga á vinnumarkaði og ábyrga kjarasamninga og við þyrftum áfram að gæta að samkeppnishæfni. En evran gæti breytt grundvallarumgjörðinni. Hún gæti lækkað gengisáhættu. Hún gæti lækkað vaxtamun. Hún gæti dregið úr verðbólgusveiflum og losað okkur við verðtrygginguna. Hún gæti gert fjármögnun heimila og fyrirtækja stöðugri og fyrirsjáanlegri. Þetta eru allt markmið sem við erum öll í þessum sal stöðugt að tala um að vilja stefna að. Þetta skipti máli fyrir framtíðaratvinnugreinar Íslands. Við tölum oft um það hér í þessum sal að vilja byggja upp fjórðu stoðina í íslensku atvinnulífi. Við tölum um hugverkaiðnaðinn, tækni, vísindi, nýsköpun og sprotafyrirtæki, en þessar greinar blómstra ekki í óstöðugu umhverfi. Þær þurfa að geta sótt fjármagn á alþjóðlega markaði. Þær þurfa að geta gert samninga í stöðugum gjaldmiðli, byggt upp traust og horft lengra fram í tímann en til næstu vaxtaákvörðunar. Og þessar greinar eru ólíkar þeim auðlindagreinum sem við hingað til höfum byggt okkar velmegun á að því mikilvæga leyti að þær geta mun auðveldar flutt sig um set ef við byggjum þeim ekki samkeppnishæft umhverfi. Það er auðvitað hægt að stofna öflug fyrirtæki á Íslandi þrátt fyrir krónuna, það hafa margir gert. En spurningin er ekki hvort við getum lifað núverandi kerfi af, spurningin er hvort við getum búið til betra kerfi. Kerfi fyrir hæfileikaríkt fólk í hugverkagreinum, verkfræði, stærðfræði, raunvísindum, líftækni, orkutækni, skapandi greinum o.s.frv., kerfi þar sem við getum skapað þessum greinum jafn góð eða betri skilyrði hér en í nágrannalöndum okkar. Við eigum ekki að sætta okkur við það að Ísland sé alltaf hávaxtaland. Við eigum ekki að sætta okkur við að ungt fólk greiði hærri vexti af húsnæðislánum en jafnaldrar þess í nágrannalöndunum. Við eigum ekki að sætta okkur við að fyrirtæki greiði krónuálag af þeirri einu ástæðu að þau starfrækja sig hér.

Virðulegur forseti. Í þessari umræðu hefur rosalega oft heyrst: Það er ekkert um að semja, pakkinn er galopinn, það er enginn samningur, þetta eru bara aðlögunarviðræður. Þetta er rangt. Þau sem halda þessu fram vita annaðhvort ekki betur eða eru að segja vísvitandi ósatt og þegar um er að ræða þingmenn þjóðarinnar veit ég ekki hvort er verra. Auðvitað þarf nýtt aðildarríki að taka upp réttindi og skyldur aðildar, enginn heldur öðru fram, en það þýðir ekki að það sé ekki um neitt að semja. Aðildarsamningar ríkja við Evrópusambandið hafa ítrekað falið í sér undanþágur, sérlausnir, aðlögunarfresti og varanlegar lausnir vegna sérstakra aðstæðna. Það er ekki mín skoðun, það hefur ítrekað komið fram í máli forsvarsmanna Evrópusambandsins. Malta fékk sérlausn í sjávarútvegsmálum. Finnland og Svíþjóð sömdu um sérstakar lausnir vegna landbúnaðar á norðlægum og strjálbýlum svæðum. Danmörk fékk undanþágu frá upptöku evru. Bretland hafði slíka undanþágu meðan það var aðildarríki. Írland er ekki í Schengen. Þetta eru allt dæmi um að það er samið.

Við getum líka skoðað hvað afrekaðist á kjörtímabilinu 2009–2013. Ísland náði sérlausnum, undanþágum eða aðlögunarfrestum í mörgum málum. Evrópusambandið féllst á undanþágu vegna kadmíums í áburði. Í skattamálum var fallist á ýmis atriði, m.a. varanlegt lægra þrep vegna Hvalfjarðarganganna sem þá var gjaldskylda í. Í kaflanum um utanríkis-, öryggis- og varnarmál var sérstaða Íslands sem herlauss lands áréttuð í sameiginlegri yfirlýsingu sem átti að verða hluti af aðildarsamningi. Þetta eru vissulega misstór atriði en þessi litlu dæmi fella þann málflutning andstæðinga að það sé ekkert um að semja. Þá náðist líka mikilvæg niðurstaða um sjálft ferlið. Ísland myndi ekki þurfa að ráðast í stofnanabreytingar eða lagabreytingar vegna aðildar fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning, ólíkt þeim þjóðum Austur-Evrópu sem hafa sótt um aðild á þessari öld, ástæðan verandi sú að Ísland er aðili að EES-samningnum, er hluti af innri markaðnum og hefur þegar aðlagað sig að verulegu leyti. Það svarar þeirri gömlu tuggu að við þurfum fyrst að breyta öllu og þegar þjóðin fái svo að kjósa sé allt orðið of seint. Nei, þjóðin fær að kjósa um samning áður en Ísland gengur í sambandið.

Virðulegi forseti. Í þessari umræðu er mikið rætt um sjávarútveg. Andstæðingar aðildar segja gjarnan að ekkert land hafi fengið varanlegar undanþágur í sjávarútvegi. Það er ekki rétt. Malta fékk sérstaka lausn í sjávarútvegsmálum, 25 sjómílna fiskveiðistjórnarsvæði með sérstöku stjórnarfyrirkomulagi. Það var lausn sem var aðlöguð að sérstökum aðstæðum Möltu og það var lausn sem varð til í samningaviðræðum. Jafnvel þótt andstæðingar hefðu rétt fyrir sér varðandi sjávarútveginn, sem þeir hafa ekki, væri röksemdin samt veik því það hefur aldrei reynt almennilega á að stór sjávarútvegsþjóð eins og Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er ekkert fordæmi fyrir því að ríki þar sem sjávarútvegur er jafn mikilvægur fyrir þjóðarbúskapinn og hér gangi í sambandið. Það er ekkert fordæmi fyrir íslensku efnahagslögsögunni, staðbundnum stofnum okkar og þeirri sérstöðu að lögsaga okkar liggur ekki að lögsögu núverandi aðildarríkja Evrópusambandsins. Það hefur ekki verið látið reyna á þetta og þess vegna eigum við að láta reyna á þetta, ekki með því að skrifa undir auðan tékka, ekki með því að lofa að ganga í sambandið hvað sem samningurinn segir, heldur með því að semja, leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina og treysta henni til að taka ákvörðun. Ef niðurstaðan í sjávarútvegsmálum verður óviðunandi þá segjum við nei. Ef niðurstaðan í landbúnaði verður óviðunandi þá segjum við nei. Ef heildarsamningurinn þjónar ekki íslenskum hagsmunum þá segjum við nei. En ef við fáum góðan samning sem tryggir okkur stöðugri gjaldmiðil, betri áhrif á löggjöf sem við nú þegar tökum upp í gegnum EES-samninginn, aukin tækifæri fyrir ungt fólk og skýrar varnir um grundvallarhagsmuni Íslands þá á þjóðin að fá að sjá hann.

Virðulegi forseti. Svo er það EES-samningurinn. Ég hef mikla trú á EES-samningnum. Hann hefur þjónað Íslandi afar vel. Hann hefur opnað fyrir okkur markaði, aukið tækifæri og styrkt íslenskt atvinnulíf. En við verðum líka að tala heiðarlega um veikleika hans. Við tökum nú þegar upp stóran hluta af regluverki Evrópusambandsins. Við gerum það vegna þess að við viljum vera hluti af innri markaðnum. Við viljum að íslensk fyrirtæki geti selt vörur og þjónustu inn á Evrópumarkað. Við viljum að íslenskir námsmenn, launafólk og fyrirtæki njóti réttinda á Evrópska efnahagssvæðinu. Það er hárrétt stefna. Gallinn er sá að við höfum mjög takmörkuð áhrif á reglurnar áður en þær verða til. Við fáum oft að koma athugasemdum á framfæri, embættismenn vinna mikilvægt starf í Brussel og víðar, en við sitjum ekki í ráðherraráðinu. Við eigum ekki kjörna fulltrúa á Evrópuþinginu. Við eigum ekki framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Við erum ekki við borðið þegar endanlegar ákvarðanir eru teknar. Aðild myndi breyta því. Hún myndi ekki gera Ísland að stórveldi. Hún myndi ekki tryggja að við fengjum alltaf okkar vilja fram en hún myndi færa okkur úr stöðu áhorfenda í stöðu þátttakenda. Hún myndi færa okkur frá því að taka upp reglur eftir á yfir í það að taka þátt í að móta þær frá upphafi. Fyrir litla opna þjóð sem er háð alþjóðaviðskiptum skiptir það máli. Þess vegna er þessi tillaga ekki ógn við lýðræðið eins og ég hef heyrt suma fleygja fram í þessari umræðu. Þessi tillaga er lýðræðisleg leið til að svara stórri spurningu. Hún er ekki ógn við fullveldið. Hún er leið til að kanna hvort við getum nýtt fullveldið betur í samstarfi við þær þjóðir sem við eigum mest undir. Hún er ekki loforð um að ganga í Evrópusambandið. Hún er loforð um að treysta þjóðinni. Við eigum að hætta að óttast upplýsingar. Við eigum að hætta að óttast samningaviðræður. Við eigum að hætta að óttast að þjóðin fái að sjá hvað stendur Íslandi til boða. Við skulum semja. Við skulum setja skýra hagsmuni Íslands í forgang. Þegar niðurstaðan liggur fyrir skulum við leggja hana fyrir þjóðina. Þannig á lýðræðið að virka.

Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.