157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:02]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar spurningar. Ég viðurkenni að ég skildi ekki alveg hvert hv. þingmaður var að fara þegar hún talaði um að ég hefði talað um fordæmalausan samning; hv. þingmaður getur kannski útskýrt það betur í síðara andsvari sínu. Það sem ég var að tala um var að það væru engin fordæmi fyrir því að í viðræðum væri þjóð eins og Ísland sem hefur mikilla hagsmuna að gæta í sjávarútvegi og er með efnahagslögsögu sem liggur ekki upp að efnahagslögsögu annarra Evrópusambandsríkja. Það eru ekki fordæmi fyrir því ef það er það sem hv. þingmaður var að tala um. Varðandi skilyrðin þá var það mögulega óheppilegt, kannski hefði átt að velja annað orð en skilyrði, en það koma fram samningsmarkmið. Þau komu fram árið 2009–2013 og að einhverju leyti koma almenn samningsmarkmið fram í tillögutextanum og þau koma fram í nefndarálitinu. Það sem ég var að tala um var að ef við leggjum einhver samningsmarkmið fyrir þjóðina — þetta er það sem við ætlum að stefna að, þetta er það sem við erum að sækjast eftir umboði til að gera — og þau nást ekki þá sé ég persónulega engan tilgang með því að leggja þann samning fyrir þjóðina af því að sá samningur uppfyllir ekki það sem lagt var upp með þegar farið var af stað í fyrri þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Ég spyr hv. þingmann þá að einhverju leyti til baka um það sama og ég átti orðastað um við hv. þm. Snorra Másson hér áðan: Eru hv. þingmenn minni hlutans að ætlast til þess að ríkisstjórnin, jafnvel þótt hún myndi ekki ná þeim markmiðum sem hún leggur upp með og væri ósátt við þann samning sem myndi nást, legði hann samt fram til seinni þjóðaratkvæðagreiðslu?