þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Loforð um víðtækar undanþágur — víðtækar undanþágur eru fullkomlega fordæmalausar. Það hefur verið margspurt að þessu á opnum og lokuðum nefndarfundum og það eru engin rök sem standa til þessara fullyrðinga. Varðandi skilyrðin þá er það hreinlega ekki orðið skýrt, eftir alla þessa umræðu, eftir lestur tillögunnar, meirihlutaálitsins og eftir ræður og svör stjórnarþingmanna, hvort um skilyrði eða markmið sé að ræða. Íslenska þjóðin á skilið að fá að vita þetta: Eru þetta skilyrði eða eru þetta einhver óljós markmið? Það þarf að svara þessu skýrt og skilmerkilega.
Ég er með nokkrar spurningar í síðari umferð fyrir hv. þingmann og hvet hann til að fara í aðra ræðu til að svara mér ef honum gefst ekki tími til þess hér, því að loksins fór einhver stjórnarþingmaður í efnislega umræðu og taldi upp alla þessa kosti Evrópusambandsins, fullyrti um lægri vexti, meiri stöðugleika o.s.frv. Nokkrar spurningar: Hver eru meðallaun á evrusvæðinu frá landi til lands? Hver er verðbólgan á evrusvæðinu frá landi til lands? Hvert er atvinnuleysi á evrusvæðinu frá landi til lands? Hverjar eru skuldir ríkissjóðs frá landi til lands á evrusvæðinu? Hversu margir á evrusvæðinu frá landi til lands búa í eigin húsnæði? (Forseti hringir.) Hvert er hlutfall húsnæðiskostnaðar frá landi til lands á evrusvæðinu? Og að lokum: (Forseti hringir.) Hversu líklegt er að lægri vextir leiði til hærra fasteignaverðs og hvaða afleiðingar hefur það? Og telur hv. þingmaður að þessar spurningar sem ég þyl hér upp skipti máli?
(Forseti (HildS): Forseti minnir á að ræðutími í síðari umferð er ein mínúta.)