þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir síðari spurningu. Það er vissulega rétt að ein mínúta er stuttur tími til að fara yfir þetta. Hv. þingmaður spyr mig til að mynda hver verðbólgan sé og hverjir vextir séu á evrusvæðinu. Þeir eru mismunandi. Það er alveg rétt, þeir eru mismunandi milli mismunandi landa, en alls staðar eiga þessi lönd það sameiginlegt að þeir eru lægri en hér. (DME: Atvinnuleysi?) Atvinnuleysi er sums staðar hærra, sums staðar lægra, á Írlandi er atvinnuleysi lægra, (Gripið fram í.) Malta, smáríki, lægra en hér. Holland, lægra atvinnuleysi en hér og meira að segja meiri hagvöxtur en hér, af því að það er alltaf talað um að það yrði svo mikil stöðnun ef við myndum — já, það eru lægri vextir í Evrópusambandinu af því að þar er svo mikil stöðnun. En það er meiri hagvöxtur á Írlandi, í Hollandi, Möltu, Lúxemborg og í sumum af þessum löndum þrátt fyrir að þau séu bæði með lægra atvinnuleysi, lægri vexti og lægri verðbólgu. Ég skal glaður taka þessar tölur saman og koma hér í síðari ræðu svo við getum farið yfir það, ég og hv. þingmaður. Þetta eru bara mjög verðugar og góðar spurningar.
(Forseti (HildS): Forseti minnir á að gefa ræðumanni hljóð.)