157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:07]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er auðvelt að hrífast með hv. þingmanni því að ég heyri að hann hefur gríðarlega trú á Evrópusambandinu og ég verð eiginlega að túlka hans orð hér þannig að það sé allt gott í Evrópusambandinu og ekkert slæmt. En mig langar kannski til að benda hv. þingmanni á það að tengingin við evru ein og sér býður ekki upp á neitt af því sem hér var rætt, m.a. í spurningum hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur. Það þarf að vinna fyrir því öllu.

Mig langar til að færa fókusinn aðeins inn á sjávarútveginn og hér erum við endalaust að ræða um það hvort það sé hægt að fá varanlegar undanþágur. Ég get ekki skilið annað á þeirri umræðu sem hér hefur farið fram, m.a. hjá hv. formanni utanríkismálanefndar, en að við munum ekki fá undanþágur frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Hvað þýðir það í raun? Þýðir það ekki í raun að við erum að gefa eftir allar okkar heimildir til þess að stýra þessum hlutum? Ef staðan er þannig, af hverju þurfum við þá yfirleitt að leggja af stað í þessa vegferð? Svarið er í mínum huga algjörlega augljóst ef niðurstaðan er að við munum ekki fá neinar undanþágur, hvorki til skemmri tíma eða lengri, a.m.k. alveg örugglega ekki óskoruð yfirráð yfir auðlindinni. Það liggur í hlutarins eðli.

Svo langar mig í framhaldi af því til að velta því upp við hv. þingmann að hér hefur komið m.a. forsætisráðherra þjóðarinnar og talað um að það verði ekki lagður samningur fyrir þjóðina ef hann er haldinn þeim ágalla að uppfylla ekki þau skilyrði sem við viljum. Þarna er eitt skilyrði. Er ekki raunhæft að senda einfaldlega fyrirspurn til Evrópusambandsins hvort við náum því markmiði að verða undanþegin sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Og ef svarið við því er nei, þá þurfum við hreinlega ekkert að fara í þessa vegferð.