þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að láta á þetta reyna en ég vil taka það fram að ég er auðvitað alls ekki þeirrar trúar að allt sé fullkomið í Evrópusambandinu og allt yrði fullkomið hér ef við myndum ganga í Evrópusambandið. Ég tók það til að mynda fram í minni ræðu að ég teldi evruna aldeilis ekki vera töfralausn. Við þyrftum t.d. að endurskoða vinnumarkaðslíkanið sem við erum með ef við myndum taka upp evruna. Það eitt og sér myndi ekki bjarga öllu. En þetta er stór hluti af þeirri vegferð, eins og ég lít á það, að ná meiri stöðugleika. Mér finnst t.d. algerlega fáránlegt að Evrópusambandið sé með einhverjar reglur um bragðbætt tóbak og að Svíar hafi þurft að sækja um undanþágu frá þeim reglum. Þeir fengu undanþágu en mér finnst fáránlegt að þessi regla sé til staðar til að byrja með. Þannig að jú, þetta getur stundum verið þungt og eins og ég kom líka inn á í minni ræðu þá yrðum við aldrei sátt með allar ákvarðanir. Við sjáum núna að Svíar eru í ákveðnum slag varðandi flöskuhálstekjur á raforkumarkaði en það er samt 80% stuðningur við aðild Svía að Evrópusambandinu. Það er bara þetta sem þetta snýst um. Það er verið að deila fullveldinu, það er verið að taka sameiginlegar ákvarðanir.
Ég var svo upptekinn af þessum punkti hv. þingmanns en hann talaði líka um sjávarútveginn og hvort við yrðum undanþegin sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni eða ekki. Ef sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni væri breytt þannig að þetta sérstaka íslenska fiskveiðistjórnarkerfi sem meiri hluti utanríkismálanefndar fjallar um í sínu nefndaráliti — ef í rauninni skilgreining á því svæði er hluti af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, þá er engin ástæða fyrir okkur að fá undanþágu frá sjálfri sjávarútvegsstefnunni. Ef það er ekki tilbúið að fallast á t.d. þá hugmynd sem kemur fram í nefndaráliti, þá þyrftum við að skoða t.d. bara undanþágur frá sjávarútvegsstefnunni. Ég er ekki endilega viss um að það myndi þjóna íslenskum hagsmunum algerlega þannig að það eru alls konar lög af gráu þarna. (Forseti hringir.) Þetta er einmitt það sem samningaviðræðurnar munu að einhverju leyti snúast um ef þjóðin samþykkir að ganga til þeirra.