157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og mér finnst þetta um margt athyglisvert. Þetta minnti mig svolítið á það að maður sé númer sex í röðinni að leggja hendi yfir logandi kerti og vera haldinn þeirri firru að maður muni ekki brenna sig. Varðandi sjávarútvegsstefnuna þá er ástæðan fyrir því að ég var að nefna þetta sérstaklega sú að ég held að það myndi spara okkur nokkuð drjúgan tíma ef staðan er þannig að fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar ætli ekki að bera samninginn undir þjóðina ef það kemur í ljós að hann mun ekki uppfylla þau skilyrði sem þessir ákveðnu aðilar setja sér, þ.e. þau markmið sem þeir hafa sett sér og samningsviðmið. Ég skil það þannig að hv. þingmaður telji það líklegt að þjóðir í Evrópu eins og t.d. Spánverjar, Hollendingar, jafnvel Pólverjar og fleiri, sem ég tel að muni klárlega hafa skoðun á því hvort við munum verða undanþegin sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni eða ekki — treystir þingmaður í alvörunni á það að þessi lönd muni ekki telja að Ísland, fyrirgefið orðbragðið, sé einhvers konar súkkulaðikleina inni í Evrópusambandinu miðað við þær forsendur?