157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:13]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ísland er að sjálfsögðu súkkulaðikleina. Ég skil hvert hv. þingmaður er að fara í spurningu sinni. Já, ég er bara mjög bjartsýnn á það að þessi lönd muni fallast á slíkar undanþágur fyrir Ísland þegar kemur að sjávarútvegi einmitt á þeim forsendum sem ég var að rekja í ræðu minni. Hér höfum við staðið nokkurn veginn ein að veiðum í áratugi og íslenska lögsagan liggur ekki að lögsögu annarra þjóða Evrópusambandsins. Horfum bara á kort, lögsaga Evrópuríkjanna liggur ofan í hver annarri. Það er ekkert skrýtið að ríki Evrópusambandsins hafi komið sér upp sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. Spurningin er: Föllum við algjörlega inn í hana, komandi frá allt öðrum stað að borðinu? Ég held ekki og ég held að lönd Evrópusambandsins muni líka sjá það.