157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að tala um einn mikilvægan punkt en það er að Malta fékk ekki varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. ESB hafnaði því sérstaklega árið 2022. En eins og hv. þm. Ingvar Þóroddsson kom inn á í síðasta andsvari, að ég held, þá var þetta nær þeim hugmyndum sem þeir hafa um að sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins verði löguð að íslensku kerfi. ESB hafnaði því alla vega skýrt árið 2022 þannig að ekkert ríki stendur fyrir utan sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Frá 2022 held ég að óhætt sé að segja að það hafi ekki verið neinar varanlegar undanþágur.

Mig langar aðeins til að taka sjávarútveginn út fyrir af því að það er alltaf verið að tala um samningaviðræður. Getur hv. þingmaður upplýst mig um það hvort tal þeirra sem tala um samningaviðræður, og að sjá einhvern samning og kíkja í pakka, snúi að varanlegum undanþágum eða hvort það snúi bara að því á hve löngum tíma við aðlögumst? Er ekki svolítið skrýtið að telja fólki trú um það, fólki sem kannski veit ekki mikið um Evrópusambandið, að Ísland sé að fara að fá varanlegar undanþágur í hinu og þessu og geti bara valið hvað því finnst gott og hvað því finnst ekki gott þegar ekkert ríki hefur á síðustu árum fengið neinar varanlegar undanþágur? Þetta var á tíunda áratugnum eins og hv. þingmaður kom inn á, einhverjar sumarbústaðabyggðir í Danmörku sem var hluti af Evrópubandalaginu, ekki einu sinni ESB. Mér finnst þetta frekar ódýr málflutningur. Mér finnst það ekki ódýr málflutningur að berjast fyrir því að fara inn í Evrópusambandið eða ekki því að við vitum hvað Evrópusambandið er. Ég spyr því aftur: Er hv. þingmaður að halda því fram að við getum fengið fullt af varanlegum undanþágum og að það sé samningurinn?