þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar andsvar. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að undanþágur eru alls konar í þessum bransa og það er líka rétt að flestar þeirra eru að einhverju leyti tímabundnar aðlögunarundanþágur. Þær eru líka stundum gerðar vegna hagsmuna Evrópusambandsins. Þegar Pólland gekk í Evrópusambandið tók það mörg ár áður en Evrópusambandið byrjaði að greiða út styrki til pólskra bænda. Það var í raun aðlögun sem Evrópusambandið gerði að sinni kröfu vegna þess að það hafði ekki endilega efni á því að byrja strax á degi eitt að greiða styrki til pólskra bænda. En það er kannski léttur útúrdúr.
Ég er mjög bjartsýnn á að við getum náð inn undanþágu þegar kemur að sjávarútvegi sem er hluti af aðildarsamningi. Ef það fyrirkomulag sem velt er upp í nefndarálitinu, um sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarkerfi, sem myndi þá virka nokkurn veginn eins og það gerir í dag, yrði skrifað inn í aðildarsamning — ef slík undanþága verður hluti af aðildarsamningi — þá er mjög mikilvægt að allir átti sig á því að henni verður ekki breytt nema með samþykki allra ríkja, þar með talið Íslands. Það væri ekki hægt að fella slíka undanþágu brott nema Ísland myndi sjálft samþykkja að breyta aðildarsamningnum. Ég er bjartsýnn á að það sé möguleiki og það er það sem ég vil að við stefnum að.