þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er alltaf gott að vera bjartsýnn. Staðreyndin er hins vegar sú að það eru 27 ríki sem þyrftu að samþykkja það að við fengjum varanlega undanþágu frá evrópsku stefnunni í sjávarútvegsmálum. Ég ætla að vera svartsýn eða raunsæ og giska á að þessi 27 ríki myndu vilja fá sama samning. Það er ástæða fyrir því að ekkert ríki hefur fengið þessa varanlegu undanþágu. En í seinna andsvari langar mig aðeins að spyrja út í það sem við höfum verið að ræða hér, þ.e. að forsætisráðherra einn, ekki einu sinni ríkisstjórnin, segist ekki ætla að bera samning undir þjóðina ef hún er ekki sammála samningnum. Þetta er mikilvægt vegna þess að við erum búin að ganga í gegnum það að rífast um hvort fyrri samningur sé gildur. Nú liggur fyrir að hann er ekki gildur en Evrópusambandið sjálft ákvarðar einhliða að samningurinn sé það sem kallað er „valid“ þó að við séum búin að hafna honum. Finnst hv. þingmanni sem sagt allt í lagi að ef forsætisráðherra Miðflokksins í næstu ríkisstjórn, nefnum það bara sem möguleika, segir að þetta sé vondur samningur fyrir þjóðina af því að við fáum ekki tollfrelsi þá eigi ekki að bera hann upp fyrir þjóðina? Er það eðlilegt að það sé ein manneskja sem ákveður hvort þjóðin eigi að fá að sjá samninginn?