157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:20]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir síðara andsvar. Hv. þingmaður segist vera svartsýn, ég er bjartsýnn. Ég er ekki bjartsýnn að ástæðulausu, þetta er ekki úr lausu lofti gripið. Hv. þingmaður talar um að ekkert þeirra 27 landa sem eru þarna fyrir hafi fengið þær undanþágur í sjávarútvegi sem við myndum sækjast eftir. Það er akkúrat það sem ég var að tala um í minni ræðu af því að það er ekkert land af þessum 27 sem er eins og Ísland þegar kemur að sjávarútvegi og ég er ekki einu sinni viss um að eitthvert af þessum 27 löndum hafi sóst eftir því að fá slíkar undanþágur þannig að það hefur ekki verið látið reyna á það.

Varðandi það hvort það sé eðlilegt — ég hugsa að það yrði aldrei forsætisráðherra einn sem myndi taka slíka ákvörðun. En mér finnst þetta bara nokkuð skýrt og ég furða mig á þessum málflutningi og þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef verið spurður út í þetta. Ef hv. þingmaður hefur rétt fyrir sér og við fáum ekki neinar undanþágur þegar kemur að sjávarútvegi, við myndum bara þurfa að ganga inn í sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, myndi hv. þingmaður þá vilja að þjóðin kysi um þann samning? Það er eins og hv. þingmenn séu að gefa í skyn að þeir myndu þá vilja að þjóðin kysi um þann samning. En þá er þessu bara sjálfhætt, ef við náum ekki neinum af þeim samningsmarkmiðum sem lagt er upp með.