hagsmunir Íslands og aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil byrja á því að benda hv. þingmanni á fína grein eftir formann flokksins, Ingu Sæland, sem birtist í Morgunblaðinu um helgina sem heitir Í dóm þjóðarinnar. Þar kemur skýrt fram hver afstaða Flokks fólksins er í þessu máli. Flokkur fólksins segir nei við aðild að Evrópusambandinu. Við erum hins vegar þeirrar skoðunar og höfum talað skýrt um það frá upphafi að það eigi að leggja fleiri mikilvæg mál í dóm þjóðarinnar. Við tölum fyrir því að íslenska þjóðin, í þjóðaratkvæðagreiðslum, taki mikilvægar ákvarðanir, þar á meðal hvort við eigum að hefja aðildarviðræður aftur að Evrópusambandinu. Það er allt of lítið um þetta, að við séum að leggja mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég tel að við eigum að gera meira af því í framtíðinni. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst er algerlega óháð ríkisstjórnarsamstarfinu.
Varðandi þessa tilvitnun í viðtal við mig á Útvarpi Sögu þá stend ég við það sem ég segi þar. Og varðandi húsnæðismarkaðinn: Allir markaðir í heiminum ráðast af framboði og eftirspurn og hafa gert það frá upphafi sögunnar. Ekki af gjaldmiðli heldur framboði og eftirspurn. Framboð á húsnæði og eftirspurn eftir húsnæði ræður verði á húsnæðismarkaði. Það mun gera það líka undir evru. Þegar við greiðum fyrir eitthvað í dag með íslenskri krónu, verðmæti á Íslandi, þá er hærra hlutfall af vöxtum en í beinum höfuðstól.