hagsmunir Íslands og aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir hreinskiptin svör. Það liggur þá hér fyrir að hann er ósammála þessum aðilum sem hafa verið að halda þessu á lofti.
Virðulegur forseti. Nú hefur hæstv. forsætisráðherra lýst því yfir að hún muni aldrei leggja til samning í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu sem hún hefur ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma. Í svipaðan streng tekur hæstv. utanríkisráðherra. Nú liggur alveg skýrt fyrir að aðild að Evrópusambandinu felur í sér veigamikið valdaframsal sem tæki til allra þriggja þátta ríkisvalds, þ.e. löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Eins og segir í umsögn Lagastofnunar Háskóla Íslands við þingsályktunartillöguna hafa reglur sambandsréttar forgangsáhrif gagnvart reglum landsréttar, þar á meðal þar sem skörunin er við stjórnarskrá aðildarríkjanna. Því vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra: Mun hann samþykkja að leggja fram aðildarsamning sem kveður á um slíkt framsal á öllum þáttum ríkisvaldsins síðar í þjóðaratkvæðagreiðslu eða eru það einungis ráðherrar Samfylkingar og Viðreisnar sem hafa neitunarvald í þessu máli?